Fotbolti.net
24.09.26 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

Viðræður við Scaloni komnar langt á veg

Viðræður við Scaloni komnar langt á veg
Canon

Mynd: EPA

Lionel Scaloni er kominn langt á veg í viðræðum við argentínska fótboltasambandið um nýjan samning.
Messi valinn í argentínska landsliðið í síðasta sinn
TENGT EFNI

Messi valinn í argentínska landsliðið í síðasta sinn

Scaloni, sem lék á sínum ferli sjö A-landsleiki fyrir land sitt, hefur stýrt landsliði Argentínu síðustu átta ár. Hann tók við þjálfarastarfinu eftir HM 2018, þegar Argentína datt úr leik eftir svakalegan leik gegn Frakklandi í 16-liða úrslitum þar sem lokatölur urðu 4-3.

Lionel Messi og félagar voru í riðli með Íslandi á mótinu og gerðu jafntefli við Strákana okkar þar sem Hannes Þór Halldórsson varði vítaspyrnu frá Messi.

Síðan þá hefur leiðin aðeins legið upp á við. Undir stjórn Scaloni vann Argentína Suður-Ameríkukeppnina 2021, heimsmeistaramótið 2022 og Suður-Ameríkukeppnina aftur 2024. Landsliðið endaði svo í öðru sæti á HM 2026 sem fór fram í sumar.

Nýr samningur Scaloni mun gilda í það minnsta út HM 2030 en einhverjir fjölmiðlar tala um tvö auka ár, eða til 2032.

Scaloni er 48 ára gamall og lagði fótboltaskóna á hilluna fyrir rétt rúmum áratugi síðan, eftir að hafa meðal annars leikið fyrir Deportivo La Coruna, Lazio og West Ham United á ferlinum. Hann var sókndjarfur hægri bakvörður.
Viðræður við Scaloni komnar langt á veg
Canon

Mynd: EPA

Viðræður við Scaloni komnar langt á veg
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.