01.09.26 - 11:26
Elvar Geir Magnússon
Albert á leið í læknisskoðun í Róm

Albert Guðmundsson er 29 ára.

Mynd: EPA

Albert Guðmundsson er 29 ára.

Mynd: EPA
Fiorentina hefur leyft Alberti Guðmundssyni að gangast undir læknisskoðun hjá Lazio, sem er að ganga frá lánssamningi með kauprétti fyrir 12 milljónir evra.
Albert spilaði tvö tímabil hjá Fiorentina eftir að hafa verið seldur frá Genoa fyrir 20 milljónir evra sumarið 2024. Hann skoraði 19 mörk og lagði upp 9 í 81 leik í öllum keppnum.
Hann hefur spilað fyrir Genoa og Fiorentina í ítölsku A-deildinni, alls skorað 26 mörk og átt 10 stoðsendingar í 105 deildarleikjum.
Lazio hefur verið að vinna í því að styrkja sóknarlínu sína og keypti Andrea Pinamonti frá Sassuolo í síðustu viku. Fiorentina er að fá Wilfried Gnonto frá Leeds United til að fylla skarð Alberts. Þá er félagið að fá Beto frá Everton en honum er ætlað að koma í stað Moise Kean sem er á leið til Como.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Roma | 2 | +8 | 6 |
| 2 | Inter | 2 | +4 | 6 |
| 3 | Milan | 2 | +3 | 6 |
| 4 | Juventus | 2 | +3 | 6 |
| 5 | Atalanta | 2 | +2 | 6 |
| 6 | Lazio | 2 | +2 | 6 |
| 7 | Udinese | 2 | +1 | 4 |
| 8 | Como | 2 | +1 | 4 |
| 9 | Frosinone | 2 | +2 | 3 |
| 10 | Napoli | 2 | +1 | 3 |
| 11 | Sassuolo | 2 | 0 | 3 |
| 12 | Cagliari | 2 | 0 | 3 |
| 13 | Lecce | 2 | -2 | 3 |
| 14 | Torino | 2 | -2 | 0 |
| 15 | Bologna | 2 | -2 | 0 |
| 16 | Genoa | 2 | -3 | 0 |
| 17 | Parma | 2 | -3 | 0 |
| 18 | Monza | 2 | -4 | 0 |
| 19 | Venezia | 2 | -4 | 0 |
| 20 | Fiorentina | 2 | -7 | 0 |