Fotbolti.net
01.09.26 - 07:40
Ívan Guðjón Baldursson

Emery: Síðasta leiktíð skiptir ekki máli

Emery: Síðasta leiktíð skiptir ekki máli
Canon

Mynd: EPA

Unai Emery þjálfari Aston Villa var ánægður með framfarirnar sem hann sá á leik liðs síns þrátt fyrir tap gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær.
England: Saka gerði sigurmarkið á Villa Park
TENGT EFNI

England: Saka gerði sigurmarkið á Villa Park

Aston Villa skapaði sér varla færi í 0-1 tapi gegn Englandsmeisturunum þar sem Bukayo Saka skoraði eina mark leiksins af stuttu færi á 59. mínútu. Emiliano Buendía átti bestu marktilraun Aston Villa sem kom í fyrri hálfleik, en skaut í slána. Hefði hann skorað er ólíklegt að markið hefði talið vegna mögulegs brots á Martin Ödegaard í aðdragandanum.

„Það er sárt að tapa en við gáfum þeim góðan leik. Við sáum nokkur ný andlit sem stóðu sig vel, ég er mjög ánægður með nýju leikmennina sem félagið er búið að kaupa í sumar," sagði Emery að leikslokum.

„Við spiluðum við besta lið deildarinnar á meðan við erum lið í enduruppbyggingu. Það er margt jákvætt við frammistöðuna í þessum leik."

Aston Villa er án stiga eftir tvær fyrstu umferðir nýs deildartímabils, en liðið byrjaði einnig illa á síðustu leiktíð.

„Við verðum að snúa genginu okkar við, það skiptir engu máli hvað gerðist á síðustu leiktíð. Við verðum að einbeita okkur að því sem er að gerast í nútíðinni, við megum ekki bera það saman við fortíðina. Ég er bjartsýnn þó að við séum ekki komnir með stig eftir tvær umferðir. Það eru 38 leikir á einu tímabili."

Taylor Harwood-Bellis og Ibrahim Mbaye eru á leiðinni til félagsins og var Harwood-Bellis meðal áhorfenda í stúkunni í gær.

„Við erum að reyna að byggja liðið upp eins hratt og við getum og samt er okkur að takast að ná í svona góða leikmenn. Ég held að hópurinn sem við erum með núna sé góður. Mér líður betur eftir þessa frammistöðu, við gáfum Arsenal alvöru leik. Ef við spilum svona í næstu leikjum þá munum við gera vel."

Arteta: Erum að reyna að styrkja hópinn
TENGT EFNI

Arteta: Erum að reyna að styrkja hópinn

Emery: Síðasta leiktíð skiptir ekki máli
Canon

Mynd: EPA

Emery: Síðasta leiktíð skiptir ekki máli
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City2+46
2Arsenal2+46
3Hull City2+36
4Chelsea2+26
5Brentford2+34
6Newcastle2+24
7Everton2+24
8Leeds2+14
9Brighton2+33
10Man Utd2+13
11Sunderland203
12Ipswich Town2-23
13Liverpool202
14Bournemouth2-11
15Nott. Forest2-11
16Fulham2-20
17Coventry2-40
18Aston Villa2-50
19Crystal Palace2-50
20Tottenham2-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.