Fotbolti.net
31.08.26 - 21:26
Ívan Guðjón Baldursson

Chelsea samþykkir tvöfalt tilboð frá Tottenham

Chelsea samþykkir tvöfalt tilboð frá Tottenham
Canon

Mynd: EPA

Chelsea er búið að samþykkja tvöfalt tilboð frá Tottenham Hotspur sem vill kaupa Tosin Adarabioyo og fá Mykhaylo Mudryk að láni.
Mudryk spenntur að spila aftur undir stjórn De Zerbi
TENGT EFNI

Mudryk spenntur að spila aftur undir stjórn De Zerbi

Tottenham er talið borga um 20 milljónir punda fyrir Tosin á meðan ekki hefur verið greint frá því hvort kaupmöguleiki eða kaupskylda fylgi með lánssamningi Mudryk.

Það flækir málin að Tottenham á eftir að semja við báða leikmenn um launamál en tíminn er afar naumur. Spurs vonast til að semja við leikmennina og ganga frá félagaskiptunum fyrir lok félagaskiptgaluggans annað kvöld.

Roberto De Zerbi vill styrkja leikmannahópinn sinn hjá Spurs eftir herfilega byrjun á nýju úrvalsdeildartímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.