Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 01. október 2020 08:53
Magnús Már Einarsson
Fjórir möguleikar hjá Man Utd ef Sancho kemur ekki
Sky Sports segir að Manchester United sé með fjóra leikmenn til skoðunar ef félaginu tekst ekki að landa Jadon Sancho frá Dortmund áður en félagaskiptaglugginn lokar á mánudaginn.

Dortmund hafnaði 91 milljóna punda tilboði frá Manchester United í vikunni og óvíst er hvort félögin nái saman.

Dembele þykir líklegur kostur ef Sancho kemur ekki en hann gæti komið á láni frá Barcelona.

Jovic er úti í kuldanum hjá Real Madrid og Cavani er félagslaus eftir að hafa yfirgefið PSG í sumar.

Sarr gæti farið frá Watford eftir fall úr ensku úrvalsdeildinni en verðmiðinn á honum ku vera í kringum 40 milljónir punda.
Athugasemdir
banner