Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 01. október 2020 11:01
Elvar Geir Magnússon
Heimild: mbl.is 
Hólmbert búinn að skrifa undir hjá Brescia
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Hólm­bert Aron Friðjóns­son hef­ur skrifað und­ir samn­ing við ít­alska B-deild­ar­fé­lagið Brescia en þetta er fullyrt á mbl.is.

Hólmbert hefur verið hjá Álasundi í Noregi frá 2018 en hann er með ellefu mörk fyrir liðið á tímabilinu.

Sagt er að Hólmbert muni fljúga til Ítalíu á morgun og þá verði tilkynnt um kaupin.

Hólmbert, sem er 27 ára, á fjóra A-landsleiki að baki en hann skoraði gegn Belgíu í síðasta landsleikjaglugga.

Brescia féll úr ít­ölsku A-deild­inni á síðustu leiktíð en Birkir Bjarnason er meðal leikmanna félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner