27.09.26 - 14:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sagður íhuga að hætta að spila með Írlandi eftir síðustu daga

Azaz í leik með Írlandi.

Mynd: EPA

Heimir Hallgrímsson er landsliðsþjálfari Írlands.

Mynd: EPA

Azaz fagnar marki með Southampton.

Mynd: EPA

Azaz í leik með Írlandi.

Mynd: EPA
Finn Azaz, leikmaður Írlands, gæti hætt í landsliðsfótbolta eftir landsleikina gegn Ísrael samkvæmt fréttum frá Írlandi.
Azaz, sem er 26 ára og spilar með Middlesbrough, á einnig rætur að rekja til Ísrael í gegnum móður sína. Hann var einnig gjaldgengur í ísraelska landsliðið en valdi Írland og lék sinn fyrsta landsleik árið 2024.

Landsleikir Írlands og Ísraels eru afar umdeildir í Írlandi og mótmæli hafa verið haldin vegna leikjanna. Írska landsliðið hélt meðal annars fund þar sem leikmenn ræddu hvort þeir ættu að taka þátt í leiknum. Eftir um fjögurra klukkustunda fundarhöld kaus meirihluti leikmanna að spila.
Gavin Bazunu, markvörður liðsins, dró sig hins vegar úr hópnum áður en atkvæðagreiðslan fór fram og sagði ákvörðun sína byggjast á þeirri trú að það væri rangt að drepa saklaust fólk.
Samkvæmt David Sneyd hjá The42 gæti Azaz nú hætt alfarið í landsliðsfótbolta eftir landsliðsgluggann.
„Með hliðsjón af umræðunni hefur The42 heimildir fyrir því að innan írska fótboltasambandsins sé talið mögulegt að Finn Azaz, sem á ísraelska móður og afa og ömmu, hætti í landsliðsfótbolta eftir þennan landsliðsglugga,“ segir í frétt miðilsins.
Azaz hefur sjálfur ekki tjáð sig opinberlega um framtíð sína með írska landsliðinu og mikilvægt er að taka fram að þessi möguleiki er sagður koma frá heimildum innan írska fótboltasambandinu en ekki frá leikmanninum sjálfum. Málið hafi tekið það mikið á hann.
Aidan Fitzmaurice hjá Irish Independent hefur jafnframt greint frá því að Azaz hafi haldið „ákafa ræðu“ fyrir liðsfélaga sína þegar málið var rætt á fundi liðsins.
Leikur Írlands og Ísraels fer fram í Debrecen í Ungverjalandi í kvöld.