Fotbolti.net
27.09.26 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Pulis: Mér finnst eins og það hafi verið svindlað á mér

Tony Pulis.

Tony Pulis.

Canon

Mynd: EPA

Tony Pulis, fyrrverandi stjóri Stoke City, segist hafa setið eftir með súrt bragð í munni eftir niðurstöðuna í máli Manchester City vegna meintra brota félagsins á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar.

Síðastliðinn föstudag var greint frá því að City hefði verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum í málinu. Búist er við því að félagið muni ákæra niðurstöðunni en ef dómurinn stendur óhaggaður er búist við því að Man City muni fá talsvert stóra refsingu.
Refsingarnar sem Man City gæti fengið
TENGT EFNI

Refsingarnar sem Man City gæti fengið

Pulis var við stjórnvölinn hjá Stoke þegar liðið mætti Manchester City í úrslitaleik FA-bikarsins árið 2011. Stoke tapaði leiknum 1-0 eftir mark frá Yaya Toure en City vann þar með sinn fyrsta stóra titil í heil 35 ár.

„Hvenær fáum við FA-bikarinn okkar?“ er spurningin sem stuðningsmenn Stoke hafa samkvæmt Pulis spurt hann síðan niðurstaðan í máli City varð ljós. Pulis ræddi við BBC um málið.

Pulis rifjar upp úrslitaleikinn á Wembley sem einn af hápunktunum á 50 ára ferli sínum í fótbolta, bæði sem leikmaður og þjálfari.

„Ég get enn séð fyrir mér þegar við gengum út fyrir leikinn og okkar stúka var öll rauð og hvít. Stuðningsmennirnir sungu Delilah og það var ótrúleg stund,“ segir Pulis.

Yaya Touré, sem skoraði eina mark leiksins, var samkvæmt Pulis á tíu sinnum hærri launum en nokkur leikmaður Stoke. Þá hafi kaupverðið fyrir Touré eitt og sér verið hærra en samanlagt kaupverð byrjunarliðs Stoke.

Pulis segist horfa öðruvísi á þennan leik núna. „Við töpuðum en við töpuðum gegn liði sem hefur nú verið fundið sekt um að brjóta fjármálareglur úrvalsdeildarinnar,“ segir hann.

Hann segir málið ekki aðeins snúast um Stoke og úrslitaleikinn á Wembley heldur alla þá titla sem City vann á árunum 2009 til 2018, tímabilinu sem brotin ná yfir. Pulis býst þó ekki við því að Manchester City hringi í sig eða Stoke og bjóði félaginu að fá bikarinn frá 2011 aftur.

„Mér finnst eins og það hafi verið svindlað á mér. Hvað sem gerist næst fáum við aldrei þennan dag aftur, tækifærið til að fagna í Stoke-on-Trent með bikarinn og verðlaunapeningana sem við börðumst svo heiðarlega fyrir.“

„Eftir að hafa brotið reglurnar fengu þeir að gera það í staðinn.“
Yaya Toure skoraði sigurmarkið í úrslitaleiknum.

Yaya Toure skoraði sigurmarkið í úrslitaleiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

City var fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum.

City var fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.