Fotbolti.net
01.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

KFA fær þrjá leikmenn (Staðfest)

Bjarki Nóel

Bjarki Nóel

Canon

Mynd: KFA

Bjarki Nóel Brynjarsson (2007) er genginn til liðs við KFA frá Hetti. Hann er uppalinn hjá Hetti og spilaði 18 leiki í 3. deildinni í fyrra og er kominn í 2. deildina með KFA.
Þá eru Benedikt Brúnsteð Jóhannsson (2009) og Sævar Atli Sigurðarson (2008) mættir aftur í KFA.

Benedikt spilaði 11 leiki í utandeildinni með Neista síðastliðið sumar en spilaði fjóra leiki í Lengjubikarnum með KFA. Sævar var frábær með Neista í sumar en hann skoraði sex mörk í níu leikjum.

KFA hafnaði í 7. sæti í 2. deild í sumar með 29 stig.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.