02.01.21 - 14:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sísí til Vals (Staðfest)

Mynd: Valur

Mynd: Valur

Sigríður Lára Garðarsdóttir er gengin í raðir Vals frá FH.
Sísí eins og hún er kölluð skrifar undir tveggja ára samning.
Sísí er 26 ára gömul og hefur lekið með yfir 200 leiki á sínum ferli á Íslandi.
Hún er uppalin hjá ÍBV en gekk í raðir FH fyrir síðasta tímabil.

Hún lék með Lilleström árið 2018 og á 30 leiki með yngri landsliðum og 20 leiki með A-landsliði Íslands.
Sísí er miðjamður en hefur einnig leyst stöðu miðvarðar.
Hún lék sextán leiki með FH sem féll úr Pepsi Max-deildinni á síðasta tímabili.
Sísí er fjórði leikmaðurinn sem Valur hefur fengið frá því síðasta tímabil kláraðist. Þær Mary Alice Vignloa, Sólveig Jóhannesdóttir Larsen og Anna Rakel Pétursdóttir höfðu áður skrifað undir á Hlíðarenda. Þær Hlín Eiríksdóttir og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir hafa farið í hina áttina, yfirgefið herbúðir félagsins.
Valur endaði í 2. sæti Pepsi Max-deildarinnar árið 2020.