16.11.26 - 08:15
Elvar Geir Magnússon
Ómögulegt að gera gagnrýnendum til geðs í þessum riðli

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari fyrir æfingu í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Frá æfingu á Laugardalsvelli í gær.

Ísland vann 3-0 sigur í Lúxemborg í fyrri glugganum.

Mynd: Kári Snorrason

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari og Ísak Bergmann Jóhannesson miðjumaður töluðu um það á fréttamannafundi í gær að það væri erfitt að gera gagnrýnendum til geðs í C-deild Þjóðadeildarinnar.
Ef Ísland vinni leiki sé umræðan um að andstæðingurinn sé svo slakur en ef Ísland vinni ekki verði allt brjálað.
„Þetta er svoldið lose–lose riðill. Ef við vinnum segja allir að það skipti ekki máli því við áttum að gera það auðveldlega. Ef við töpum verður allt vitlaust. Sem betur fer eru allir strákarnir miklir fagmenn og gera sér grein fyrir stöðunni. Þeir eru fókuseraðir á því að loka þessum glugga á eins góðan hátt og mögulegt er," segir Arnar og Ísak tekur undir.

TENGT EFNI
Arnar Gunnlaugs: Veit alveg hvað mínir landar munu segja
„Við þurfum náttúrulega fyrst og fremst að vera ekki að spá í utanaðkomandi hlutum. Við verðum bara að fókusa á að bæta okkur og við erum á vegferð. Við unnum 5-0 og þá var Búlgaría ekki nógu gott lið. Við erum bara að bæta okkur hægt og rólega sem lið, við erum bara að fókusa á það, við getum ekki verið að spá í einhverjum hlutum sem eru ekki í okkar stjórn. Við getum bara fókusað á að ná úrslitum og frammistöðu og við ætlum að halda því áfram," segir Ísak.
Furðulegt hvernig þeim hefur gengið
Ísland mætir Lúxemborg í síðasta leik sínum í riðlakeppni C-deildar Þjóðadeildarinnar klukkan 17 á Laugardalsvelli. Þar getur Ísland innsiglað sigur í riðlinum og komist beint upp í B-deildina að nýju.
Það er ekki mikið sjálfstraust í Lúxemborgurum sem hafa tapað síðustu fjórum leikjum án þess að skora mark. Þeir hafa verið algjörlega bitlausir og veðbankar búast við mjög öruggum íslenskum sigri.
„Það er alveg furðulegt hvernig þeim hefur gengið. Það er stutt síðan við töpuðum 3-1 fyrir þeim og gerðum jafntefli á Laugardalsvelli. Í aðdraganda riðilsins hélt ég að þetta yrði lið sem færi í baráttu við okkur. Svo bara þessi blessaði fótbolti maður, sjálfstraustið hjá þeim fór til fjandans eftir leikinn gegn okkur því þeir höfðu unnið Búlgaríu, á erfiðum útivelli," segir Arnar.
„Ég býst við því að þeir spili án pressu gegn okkur, fari í svona smá 'fokk it' hugarfar ef ég leyfi mér að sletta. Verði kannski einhvern veginn villtir, byrji að pressa og vera með einhver læti. Þá er það okkar svolítið að taka á móti þeim með sterkum og aggressífum leik. Þetta er alveg fínasta lið með fínustu leikmenn en vantar það sem við höfum, toppframherja til að klára uppbyggingu sóknar."
Jafntefli dugar Íslandi til að vinna riðilinn vegna öflugrar markatölu og þá er ljóst að Ísland endar alltaf í efsta sæti ef Eistland vinnur ekki Búlgaríu í leik sem fram fer á sama tíma. Það er mikilvægt fyrir Ísland að sigra af fleiri ástæðum en bara að tryggja sér upp í B-deild. Með því að vinna riðilinn verðum við í þriðja styrkleikaflokki þegar dregið verður í undankeppni EM í byrjun desember og sigur styrkir stöðu okkar þegar kemur að möguleika á bakdyraleið á EM ef við náum ekki sæti í gegnum undankeppnina.

Mynd: KSÍ