Cristiano Ronaldo er sagður hafa lagt niður störf hjá Al-Nassr fyrir komandi leik liðsins í dag. Hann er sagður vera óaánægður með stjórnun sádi-arabíska ríkissjóðsins sem fer með fjármál félagsins.
Ríkissjóðurinn á 75 prósenta hlut í fjórum félögum í sád-arabísku úrvalsdeildinni, Al-Ahli, Al-Ittihad, Al-Hilal og Al-Nassr.
Samkvæmt portúgölskum fjölmiðlum er Ronaldo ósáttur við að Al-Nassr hafi ekki fengið nægilegar styrkingar samanborið við hin liðin þrjú.
Eftir að Cristiano Ronaldo gekk til liðs við félagið árið 2023 fylgdu fleiri stór nöfn í deildina í kjölfarið, þar á meðal Karim Benzema, Kalidou Koulibaly og Riyad Mahrez, sem allir sömdu við félög í eigu ríkissjóðsins.
Ronaldo hefur þó fengið þekkt nöfn til liðs við sig en Sadio Mané, Joao Félix og Kingsley Coman leika með Al-Nassr.
Pirringur stórstjörnurnar gæti hafa sprottið út frá því að hann eigi engan landstitil með liðinu frá því að hann fór til Sádí-arabíu fyrir þremur árum.

Athugasemdir