02.02.26 - 18:32
Elvar Geir Magnússon
Sarr kallaður til baka til Chelsea (Staðfest) - Verður ekkert af því að Disasi fari til West Ham?

Mamadou Sarr (lengst til hægri).

Mynd: EPA

Mamadou Sarr (lengst til hægri).

Mynd: EPA
Chelsea hefur staðfest að Mamadou Sarr hafi verið kallaður til baka úr láni hjá franska systurfélaginu Strasbourg. Mögulegt er að Sarr spili gegn Wolves á laugardag.
Chelsea ákvað að kalla Sarr til baka þar sem Jeremy Jacquet, miðvörður Rennes, hætti við að fara til Chelsea og valdi Liverpool í ljósi þess að hann sér meiri möguleika á spiltíma.
Sarr er tvítugur senegalskur landsliðsmiðvörður.

Háar launakröfur
Enn hefur West Ham ekki staðfest Axel Disasi sem virtist á leið til félagsins frá Chelsea á lánssamningi. Sky Sports greinir hinsvegar frá því að mögulega verði ekkert af skiptunum þar sem launakröfur leikmannsins séu of háar.
Disasi er búinn í læknisskoðun hjá West Ham en glugganum verður lokað rétt á eftir, eða klukkan 19:00. Bíðum og sjáum hvað gerist.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 8 | +11 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 8 | +16 | 16 |
| 4 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 5 | Chelsea | 8 | +2 | 13 |
| 6 | Brentford | 8 | +5 | 11 |
| 7 | Leeds | 8 | +3 | 11 |
| 8 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 9 | Aston Villa | 8 | -3 | 11 |
| 10 | Hull City | 8 | +1 | 10 |
| 11 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 12 | Ipswich Town | 8 | -4 | 10 |
| 13 | Bournemouth | 8 | -1 | 9 |
| 14 | Tottenham | 8 | -2 | 9 |
| 15 | Fulham | 8 | -2 | 8 |
| 16 | Man Utd | 8 | -3 | 7 |
| 17 | Crystal Palace | 8 | -10 | 7 |
| 18 | Nott. Forest | 8 | -4 | 6 |
| 19 | Coventry | 8 | -9 | 6 |
| 20 | Sunderland | 8 | -8 | 5 |