02.02.26 - 17:55
Brynjar Ingi Erluson
Umboðsmaður Tonali: Það er ekkert til í þessu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Umboðsmaður ítalska miðjumannsins Sandro Tonali segir ekkert hafa verið til í því að Arsenal hafi reynt að fá leikmanninn til félagsins fyrir gluggalok.

TENGT EFNI
Arsenal sýnir Tonali áhuga en hann er ekki til sölu
Arsenal er að skoða markaðinn eftir að Mikel Merino fótbrotnaði og var talað um að Tonali væri á óskalista félagsins.
Giuseppe Riso, umboðsmaður Tonali, segir Newcastle ekki hafa áhuga á að selja hann í þessum glugga og að það hafi aldrei verið rætt.
„Það er ekki til umræðu á þessum tímapunkti. Sjáum til hvernig þetta verður í mars varðandi verðmiðann, en bara ef Newcastle ákveður að opna dyrnar."
„Hann er algerlega einbeittur á tímabilið hjá Newcastle þannig það er ekkert vit í því að ræða þetta núna," sagði Riso.
„Við áttum aldrei nein samtöl með Arsenal. Newcastle var heldur aldrei að fara leyfa Tonali að yfirgefa félagið í janúar. Það er bara ekkert til í þessu og við ræddum þetta ekki okkar á milli," sagði hann enn fremur.