Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mán 02. mars 2026 17:44
Kári Snorrason
Viðtal
„Ef fólk er óánægt hjá Víkingi getur það bankað upp á hjá mér og vælt yfir því“
Kári eftir að Víkingur lyfti Bestu deildar skildinum síðasta haust.
Kári eftir að Víkingur lyfti Bestu deildar skildinum síðasta haust.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Kristinn Bjarnason var tilkynntur sem nýr leikmaður Víkings fyrr í dag.
Jóhannes Kristinn Bjarnason var tilkynntur sem nýr leikmaður Víkings fyrr í dag.
Mynd: Víkingur R.
Frá úrslitaleik Reykjavíkurmótsins.
Frá úrslitaleik Reykjavíkurmótsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári segir Elías Má Ómarsson ekki á förum.
Kári segir Elías Má Ómarsson ekki á förum.
Mynd: Víkingur
Víkingur tilkynnti fyrr í dag að Jóhannes Kristin Bjarnason hefði gengið til liðs við félagið frá danska liðinu Kolding. Hann skrifaði undir samning sem gildir til ársins 2029.

Ríkjandi Íslandsmeistararnir styrkja þar með öflugan hóp sinn fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni.

Fótbolti.net sló á þráðinn til Kára Árnasonar, yfirmanns fótboltamála hjá Víkingi, og ræddi við hann um komu Jóhannesar sem og þá miklu breidd sem nú er í liðinu.

Söluvara
„Þetta er gríðarlega spennandi leikmaður, ungur og efnilegur. Hann er með drifkraft og góða skotlöpp. Jói er heilt yfir mjög góður leikmaður. Hann er einn af þessum leikmönnum sem við stefnum á að selja aftur út síðar meir.

Þegar maður heyrði að hann væri hugsanlega á leiðinni heim þá tók maður stöðuna á fjölskyldunni og þetta virtist vera svona. Þeir (Kolding) voru tilbúnir í samtalið og við komumst að samkomulagi sem allir voru sáttir við.“


Jóhannes er miðjumaður en hann getur jafnframt leyst stöðu hægri bakvarðar. Kári var spurður hvar hann sér Jóa fyrir sér í Víkingsliðinu.
„Hann er leikmaður sem getur leyst margar stöður. Það er alltaf góður eiginleiki og við erum með nokkra þannig hjá okkur. Maður veit aldrei hvað gerist. En auðvitað er hann miðjumaður að upplagi.“

Eins furðulega og það kann að hljóma, er þetta leikmaður sem þið þurfið?
„Við þurfum alla góða leikmenn. Auðvitað erum við sterkir á miðjunni en við þurfum breidd líka. Aron Elís hefur verið mikið meiddur, Sveinn Margeir er kant- og miðjumaður sem hefur verið meiddur og Gylfi er ekkert að yngjast. Við þurfum líka að hugsa til framtíðar.“

Segir hópinn ekki of stóran
Fótbolti.net fjallaði um fyrir helgi um þá ógnvænlegu breidd sem Víkingur býr yfir. Stillt var upp í A- og B-lið, alls voru 34 landsleikir í B-liðinu. Þá voru 27 þekktar stærðir í leikmannahópnum eins og hann leggur sig.

Er hópurinn ekki of stór?
„Það er alveg hægt að segja það en við höfum lent í miklum meiðslum síðustu ár. Þegar við töpuðum deildinni í síðasta leik þá var hópurinn hugsanlega of lítill. Við erum ekkert búnir að vera blaðra um það opinberlega en við höfum verið að glíma við mikil meiðsli.

Menn hafa verið að meiðast í þessari törn, þannig við þurfum á breiddinni að halda. Það þýðir ekkert að hafa hvern sem er, þetta þurfa að vera gæðaleikmenn. Ef þetta reynist vera of mikið þá getur vel verið að við þurfum að skera hópinn niður.“


Davíð Helgi Aronsson var lánaður til Keflavíkur í gær og þá hefur jafnframt verið rætt um að Atli Þór Jónasson verði einnig lánaður í lið innan deildarinnar.

Ætlið þið að minnka við ykkur fyrir tímabil?
„Já, það verður skoðað að einhverjir fara á láni. Þegar við tölum um miðjumenn þá er Daði Berg, efnilegasti leikmaður deildarinnar á síðasta ári, meiddur og var að koma úr aðgerð. Erlingur (Agnarsson) var að koma úr aðgerð og stíga sín fyrstu skref eftir það.

Það eru mikil skakkaföll þegar þú spilar svona marga leiki á ári. Ég hef ekki áhyggjur af því að leikmannahópurinn sé of stór. Ef fólk er óánægt hjá Víkingi getur það bankað upp á hjá mér og vælt yfir því.“


Elías ekki falur
Þungavigtin greindi frá því að Víkingur væri opið fyrir því að lána Elías Má Ómarsson út fyrri hluta tímabils. Hann gekk til liðs við Víking frá Meizhou Hakka í Kína skömmu fyrir áramót.

Kári segir þó slúðrið ekki rétt og segir að Elías muni aðeins leika í Víkingstreyjunni næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner