Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   mán 02. mars 2026 09:30
Kári Snorrason
Sara Björk: Erum örugg eins og er
Sara Björk, Árni og barn.
Sara Björk, Árni og barn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sara Björk Gunnarsdóttir segir að hún og fjölskylda sé örugg en viðurkennir að staðan í Sádi-Arabíu sé óhugguleg.

Nýlegar árásir Ísraels og Bandaríkjanna á Íran leiddu til þess að Íran hefur brugðist við með eldflaugaárásum á Ísrael og á herstöðvar Bandaríkjanna í nágrannaríkjum á svæðinu nálægt Sádi-Arabíu.

Sara tjáði sig á samfélagsmiðlinum Instagram í gærdag:
„Við erum örugg í augnablikinu, þó að allt sé mjög nálægt heimili okkar hér í Sádi. En staðan er mjög óhugnanleg og ekki eitthvað sem við erum vön. Vonandi færist þetta ekki í aukana.“

Sara og maður hennar, Árni Vilhjálmsson hafa verið á mála í Sádi-Arabíu í um tvö ár. Þau hafa bæði verið nýlega orðuð við heimkomu.
Athugasemdir
banner