Valur 1 - 4 KR
0-1 Ástbjörn Þórðarson ('10 )
0-2 Stefán Árni Geirsson ('45 )
0-3 Stefán Árni Geirsson ('61 )
1-3 Dagur Orri Garðarsson ('92 )
1-4 Amin Cosic ('95 )
Rautt spjald: Emil Alexander Larsen, Valur ('45) Lestu um leikinn
0-1 Ástbjörn Þórðarson ('10 )
0-2 Stefán Árni Geirsson ('45 )
0-3 Stefán Árni Geirsson ('61 )
1-3 Dagur Orri Garðarsson ('92 )
1-4 Amin Cosic ('95 )
Rautt spjald: Emil Alexander Larsen, Valur ('45) Lestu um leikinn
KR-ingar eru komnir með fimmta sigurinn í röð í Bestu deild karla en Valur var bráðin í kvöld.
Það hefur verið mikið flæði á KR-ingum í byrjun tímabils og var engin breyting á því á Hlíðarenda.
Ástbjörn Þórðarson kom þeim yfir á 10. mínútu. Aron Sigurðarson tók hornspyrnu sem rataði á Gabríel Hrannar Eyjólfsson sem kom boltanum aftur fyrir á Ástbjörn sem skallaði hann í netið.
Valsmenn fengu dauðafæri til að jafna þremur mínútum síðar. Ólafur Flóki Stephensen stakk Hrafn og Ástbjörn af, kom boltanum á Albin Skoglund sem var kominn einn gegn Halldóri Snæ Georgssyni, en hann sá við honum.
Bæði lið vildu fá vítaspyrnu með stuttu millibili. Amin Cosic féll í teig Valsmanna eftir viðskipti hans við Skoglund og stuttu síðar var Lúkas Logi Heimisson klipptur af Ástbirni í hinum teignum en ekkert dæmt.
Leikurinn mjög opinn en það voru KR-ingar sem náðu að setja mark áður en hálfleikurinn var úti. Stefán Árni Geirsson missti boltann frá sér en fékk hann aftur. Hann keyrði fram með boltann og skaut síðan boltanum sem fór af Hólmari Erni Eyjólfssyni og framhjá Frederik Schram áður en boltinn endaði í netinu.
Í hálfleik fékk Emil Alexander Larsen í liðsstjórn Vals að líta gult og síðan rautt frá Elíasi Inga Árnasyni, dómara leiksins. Hann fékk aðvörun en hlustaði ekki og var rekinn upp í stúku.
Í síðari hálfleiknum var þetta alger einstefna af hálfu KR sem gersamlega sundurspilaði Valsara.
Stefán Árni bætti við öðru marki sínu á 61. mínútu. Alexander Rafn Pálmason og Luke Raye áttu fallegt þríhyrningsspil áður en Luke kom boltanum inn á teiginn á Stefán Árna. Frederik varði frá Stefáni sem fékk boltann aftur og skoraði.
Það færðist smá pirringur í Valsara sem sönkuðu að sér gulum spjöldum seinni hluta leiksins.
KR-ingar hafa verið að leka inn mörkum í leikjum og tókst Val að minnka muninn í byrjun uppbótartímans er varamaðurinn Dagur Orri Garðarsson fékk boltann á milli varnarmanna og skoraði með laglegu skoti. KR-vörnin sofandi í þessu marki.
Það var hins vegar KR sem átti síðasta orðið og var það Amin sem kórónaði frábæra frammistöðu er Hörður Ingi Gunnarsson hitti ekki boltann og slapp Amin einn í gegn, dansaði framhjá Frederik áður en hann lagði boltann í autt markið.
Frammistaða KR-inga ein sú besta á þessu tímabili og virðist ekkert fá þá stöðvað. Fimmti sigurinn af fimm mögulegum, en það verður rosalega erfitt að sjá eitthvað lið vinna þá í þessu formi. Valur er með níu stig í þriðja sæti deildarinnar. KR-ingar mæta Stjörnunni í næstu umferð á meðan Valur spilar við Fram.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 4 | 4 | 0 | 0 | 18 - 8 | +10 | 12 |
| 2. Víkingur R. | 4 | 3 | 1 | 0 | 10 - 3 | +7 | 10 |
| 3. Valur | 4 | 3 | 0 | 1 | 10 - 5 | +5 | 9 |
| 4. Breiðablik | 4 | 2 | 2 | 0 | 6 - 1 | +5 | 8 |
| 5. Fram | 4 | 2 | 1 | 1 | 11 - 6 | +5 | 7 |
| 6. Stjarnan | 4 | 2 | 0 | 2 | 10 - 11 | -1 | 6 |
| 7. Þór | 5 | 2 | 0 | 3 | 5 - 11 | -6 | 6 |
| 8. Keflavík | 4 | 1 | 1 | 2 | 5 - 7 | -2 | 4 |
| 9. KA | 5 | 1 | 1 | 3 | 5 - 8 | -3 | 4 |
| 10. ÍA | 4 | 0 | 2 | 2 | 4 - 9 | -5 | 2 |
| 11. FH | 4 | 0 | 1 | 3 | 5 - 11 | -6 | 1 |
| 12. ÍBV | 4 | 0 | 1 | 3 | 5 - 14 | -9 | 1 |




