Titilbaráttulið Arsenal tekur á móti Fulham í Lundúnaslag í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og hafa byrjunarliðin verið kynnt til leiks.
Mikel Arteta þjálfari gerir fimm breytingar á byrjunarliðinu sem náði jafntefli við Atlético Madrid í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í miðri viku.
Bukayo Saka kemur inn í byrjunarliðið og tekur fyrirliðabandið af Martin Ödegaard sem er að glíma við meiðsli og er því ekki í hóp. Riccardo Calafiori, Myles Lewis-Skelly, Leandro Trossard og Eberechi Eze koma inn í byrjunarliðið ásamt Saka.
Piero Hincapié, Gabriel Martinelli, Noni Madueke og Martín Zubimendi setjast á bekkinn en hinn óþreytandi Declan Rice heldur sínu sæti á miðjunni.
Í liði gestanna gerir Marco Silva þjálfari tvær breytingar frá sigri gegn Aston Villa um síðustu helgi. Harrison Reed og Antonee Robinson koma inn fyrir Sander Berge og Ryan Sessegnon.
Emile Smith Rowe er í byrjunarliðinu gegn uppeldisfélaginu en Alex Iwobi er fjarverandi vegna meiðsla.
Arsenal: Raya, White, Saliba, Gabriel, Calafiori, Rice, Lewis-Skelly, Eze, Saka, Trossard, Gyokeres.
Varamenn: Kepa, Mosquera, Hincapie, Jesus, Martinelli, Norgaard, Madueke, Zubimendi, Dowman.
Fulham: Leno, Castagne, Andersen, Bassey, Robinson, Reed, Lukic, Wilson, Smith Rowe, Chukwueze, Jimenez.
Varamenn: Lecomte, Tete, Diop, Cuenca, Cairney, King, Bobb, Kusi-Asare, Muniz.



