Fotbolti.net
02.05.26 - 13:13
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið dagsins: Lítið af breytingum fyrir spennandi slagi

Byrjunarlið dagsins: Lítið af breytingum fyrir spennandi slagi
Canon

Mynd: EPA

Það hefjast þrír leikir á sama tíma í ensku úrvalsdeildinni í dag og er mikið undir. Mest spennandi slagurinn er viðureign Brentford gegn West Ham þar sem heimamenn eru í harðri baráttu um evrópusæti á meðan gestirnir eru í bullandi fallbaráttu.
Keith Andrews þjálfari Brentford og Nuno Espírito Santo hjá West Ham gera engar breytingar á byrjunarliðum sínum á milli leikja. Brentford mætir til leiks með sama lið og tapaði naumlega gegn Manchester United á Old Trafford á meðan Hamrarnir eru með sömu uppstillingu og í sigrinum gegn Everton.

Hákon Rafn Valdimarsson er á sínum stað á varamannabekknum.

Eddie Howe gerir eina breytingu á byrjunarliði Newcastle eftir tap gegn Arsenal um helgina. Joelinton er búinn að taka út leikbann og snýr aftur á miðjuna í stað Jacob Ramsey sem sest á bekkinn.

Fabian Hürzeler gerir einnig eina breytingu eftir 3-0 sigur Brighton gegn Chelsea í síðustu umferð. Danny Welbeck tekur sér stöðu í fremstu víglínu og sest Georginio Rutter á bekkinn.

Brighton er í harðri baráttu um sæti í Evrópudeildinni, átta stigum fyrir ofan Newcastle sem siglir lygnan sjó um miðja úrvalsdeild eftir fjóra tapleiki í röð.

Að lokum þurfa nýliðar Sunderland á sigri að halda á útivelli gegn botnliði Wolves. Régis Le Bris gerir aðeins tvær breytingar á byrjunarliðinu eftir fimm marka tap á heimavelli um helgina, þar sem Chemsdine Talbi og Reinildo koma inn fyrir Habib Diarra og Chris Rigg sem setjast á bekkinn.

Sunderland er í óvæntri baráttu um evrópusæti og þarf sigur til að bæta stöðu sína. Úlfarnir eru þegar fallnir og því aðeins að spila upp á stoltið. Þeir gera þrjár breytingar frá 0-1 tapi gegn Tottenham um síðustu helgi.

Brentford: Kelleher; Kayode, Collins, Van den Berg, Lewis-Potter; Jensen, Yarmoliuk, Damsgaard; Ouattara, Thiago, Schade.
Varamenn: Valdimarsson, Hickey, Pinnock, Dasilva, Nelson, Ajer, Janelt, Donovan, Furo.

West Ham: Hermansen; Walker-Peters, Mavropanos, Disasi, Diouf; Fernandes, Soucek; Bowen, Pablo, Summerville; Castellanos.
Varamenn: Areola, Wilson, Traore, Lamadrid, Todibo, Magassa, Wan-Bissaka, Scarles, Kante.



Newcastle: Pope, Miley, Botman, Thiaw, Burn, Joelinton, Tonali, Guimaraes, Murphy, Willock, Osula
Varamenn: Ramsdale, Trippier, Hall, Gordon, Wissa, Woltemade, Barnes, Elanga, Ramsey

Brighton: Verbruggen, Wieffer, Van Hecke, Boscagli, Kadioglu, Baleba, Gross, Hinshelwood, Minteh, Mitoma, Welbeck
Varamenn: Steele, Julio, Dunk, Rutter, Kostoulas, Ayari, De Cuyper, O'Riley, Veltman



Wolves: Bentley, Lima, Mosquera, S Bueno, Toti, H Bueno, Andre, J Gomes, Mane, Armstrong, Arokodare.
Varamenn: Gracey, Tchatchoua, Doherty, Wolfe, A Gomes, Bellegarde, R Gomes, Edozie, Hwang.

Sunderland: Roefs, Mukiele, Ballard, Alderete, Reinildo, Xhaka, Sadiki, Le Fee, Hume, Talbi, Brobbey.
Varamenn: Ellborg, Geertruida, O’Nien, Cirkin, Rigg, Diarra, Mayenda, Isidor, Ta Bi.
Byrjunarlið dagsins: Lítið af breytingum fyrir spennandi slagi
Canon

Mynd: EPA

Byrjunarlið dagsins: Lítið af breytingum fyrir spennandi slagi
Canon

Mynd: KSÍ

Byrjunarlið dagsins: Lítið af breytingum fyrir spennandi slagi
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City3+59
2Arsenal3+59
3Hull City3+37
4Chelsea3+16
5Brentford3+35
6Liverpool3+25
7Newcastle3+25
8Everton3+25
9Leeds3+15
10Brighton3+34
11Man Utd3+14
12Sunderland304
13Crystal Palace3-43
14Ipswich Town3-43
15Bournemouth3-12
16Nott. Forest3-12
17Aston Villa3-51
18Tottenham3-51
19Fulham3-30
20Coventry3-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.