Kai Havertz er áfram á meiðslalistanum hjá Arsenal en Mikel Arteta staðfesti að þýski sóknarmaðurinn verði ekki með gegn Fulham í úrvalsdeildinni í dag.
Þjóðverjinn fór af velli í fyrri hálfleik í 1-0 sigri á Newcastle um síðustu helgi. Hann missti af 1-1 jafntefli liðsins gegn Atletico í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á dögunum.

„Það er mikill missir. Við erum að tala um einn af mikilvægustu sóknarmönnunum og hann hefur verið fjarverandi í 7-8 mánuði (í heild) og ekki sá eini því miður. Við höfum sýnt að við getum komist í gegnum þetta," sagði Arteta.
Arsenal getur náð sex stiga forystunni í titilbaráttunni gegn City með sigri á Fulham en þá á Man City tvo leiki til góða.