Fotbolti.net
02.05.26 - 21:15
Sverrir Örn Einarsson

Óttast að Atanga spili ekki meira á tímabilinu - „Mögulega einn besti leikmaður deildarinnar"

Isaac Atanga borinn af velli í dag

Isaac Atanga borinn af velli í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Isaac Atanga leikmaður Þórs varð fyrir skelfilegum meiðslum í leiks Þórs gegn KA í dag. Isaac var í baráttu við við Kára Gautason leikmann KA um boltann strax á fyrstu mínútu leiksins er hann virtist misstíga sig illa og var fluttur á brott af leikstað með sjúkrabíl.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 1 KA
Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs var spurður um stöðu kantmannsins í viðtali við Fótbolta.net eftir leik og sagði.

„Hann er bara mjög illa fótbrotinn og tímabilið líklega búið.“

Sagði Sigurður og bætti svo við.

„Þetta er bara hræðilegt. Hræðilegt fyrir hann, mögulega einn besti leikmaður deildarinnar þannig að þetta er högg fyrir okkur og nýbúið að loka glugganum. Vonandi líður honum bara vel upp á spítala, við munum hugsa vel um hann og hjálpa honum að takast á við þetta.“

Sagði Sigurður um Atanga sem vonandi fær skjótan bata af þessum skelfilegu meiðslum.

Siggi Höskulds lýsir vonbrigðunum: Nei það er ekki hægt

Óttast að Atanga spili ekki meira á tímabilinu - „Mögulega einn besti leikmaður deildarinnar"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.