Fotbolti.net
02.05.26 - 21:27
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Barcelona með aðra hönd á titlinum

Robert Lewandowski skoraði með skalla

Robert Lewandowski skoraði með skalla

Canon

Mynd: EPA

Spánarmeistarar Barcelona eru aðeins einum sigri frá því að tryggja sér deildarmeistaratitilinn annað árið í röð eftir 2-1 útisigur liðsins á Osasuna í kvöld.
Þetta var þolinmæðisvinna hjá Börsungum sem tóku ekki forystuna fyrr en á 81. mínútu er Robert Lewandowski stangaði fyrirgjöf Marcus Rashford í netið.

Englendingurinn var með boltann úti hægra megin, beið og beið áður en hann sá hlaupið hjá Lewandowski sem stýrði boltanum örugglega í netið. Ferran Torres gerði annað markið fimm mínútum síðar eftir stoðsendingu Fermin Lopez áður en Raul Garcia minnkaði muninn undir lok leiks.

Barcelona er með fjórtán stiga forystu á toppnum þegar fjórar umferðir eru eftir. Tæknilega séð getur liðið fagnað titlinum á morgun ef Real Madrid tapar stigum gegn Espanyol.

Ef Real Madrid vinnur á morgun þá fær Barcelona tækifæri til að tryggja titilinn gegn erkifjendum sínum á Camp Nou um næstu helgi.

Úrslit og markaskorarar:

Alaves 2 - 4 Athletic
1-0 Antonio Blanco ('8 )
1-1 Robert Navarro ('46 )
2-1 Nahuel Tenaglia ('68 )
2-2 Oihan Sancet ('74 )
2-3 Nico Williams ('83 )
2-4 Nico Williams ('87 )

Osasuna 1 - 2 Barcelona
0-1 Robert Lewandowski ('81 )
0-2 Ferran Torres ('86 )
1-2 Raul Garcia ('88 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Barcelona4+1512
2Alaves4+710
3Sevilla5+210
4Real Madrid4+79
5Betis409
6Deportivo4+38
7Atletico Madrid4+17
8Osasuna4-17
9Real Sociedad5-27
10Athletic4+16
11Levante405
12Espanyol4+14
13Racing Santander4-14
14Vallecano4-34
15Getafe4-34
16Celta5-33
17Villarreal4-22
18Malaga4-62
19Elche4-71
20Valencia5-91
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.