Fotbolti.net
02.05.26 - 22:27
Brynjar Ingi Erluson
LiveyÍtalski boltinn

„Þeir spila ekki með markvörð“

Antonio Conte

Antonio Conte

Canon

Mynd: EPA

Antonio Conte, þjálfari Napoli á Ítalíu, hrósaði franska markverðinum Jean Butez í hástert eftir frammistöðu hans í markalausa jafnteflinu gegn Como í dag.
Ítalía: Liðsfélagi Mikaels læsti búrinu - Markalaust hjá Como og Napoli
TENGT EFNI

Ítalía: Liðsfélagi Mikaels læsti búrinu - Markalaust hjá Como og Napoli

Como var með yfirburði gegn Napoli en tókst ekki að nýta þá og var það ekki fyrr en í restina sem ríkjandi Ítalíumeistararnir náðu að ógna heimamönnum.

Conte var mjög ánægður með stigið.

„Við erum sáttir við stigið og leikinn. Við vitum alveg hversu mörg vandamál svona leikir skapa, en við spiluðum vel og sérstaklega í síðari hálfleiknum. Við fengum færi til að skora, en allt í allt var þetta gott stig og við munum reyna að enda eins ofarlega og við mögulega getum,“ sagði Conte.

Hann hrósaði sérstaklega Butez, markverði Como, sem er einn mikilvægasti hlekkurinn í uppspili liðsins.

„Como spilar ekki með markvörð. Þeir spila með útileikmann í markinu og það er ótrúlega erfitt að pressa hann. Tímasetningin hans er stórkostleg og ef hann sér sendingu þá mun hann skapa vandamál fyrir þig,“ sagði Conte.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Roma3+99
2Inter3+59
3Lazio3+39
4Como3+47
5Milan3+37
6Juventus3+37
7Frosinone3+36
8Atalanta3+16
9Cagliari3+16
10Udinese304
11Sassuolo304
12Napoli303
13Torino3-13
14Lecce3-33
15Fiorentina4-63
16Bologna3-21
17Parma3-31
18Monza3-41
19Genoa3-60
20Venezia4-70
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.