Fotbolti.net
02.06.15 - 11:34
Magnús Már Einarsson

Aron framlengir við Cardiff (Staðfest)

Aron framlengir við Cardiff (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aron Einar Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Cardiff sem gildir til ársins 2018.
Hinn 26 ára gamli Aron kom til Cardiff frá Coventry árið 2011. Hann fór í úrslitaleik enska deildabikarsins með Cardiff árið 2012 og hjálpaði liðinu að komast upp í ensku úrvalsdeildina ári síðar.

Aron féll með Cardiff í fyrra en hann var fastamaður með liðinu í Championship deildinni á nýliðnu tímabili.

Aron hefur skorað 18 mörk í 168 leikjum með Cardiff.

Cardiff tók saman mörkin sem Aron hefur skorað fyrir félagið og þau má sjá hér að neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.