02.06.15 - 18:10
Elvar Geir Magnússon
Benítez nýr þjálfari Real Madrid (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur boðað til fréttamannafundar á morgun þar sem Spánverjinn Rafa Benítez verður kynntur sem nýr þjálfari spænska stórliðsins.
Þessi fyrrum knattspyrnustjóri Liverpool og Chelsea var við stjórnvölinn hjá Napoli á liðnu tímabili.
Benítez tekur við af Carlo Ancelotti á Bernabeu.
Real Madrid vann Meistaradeildina í fyrra en Ancelotti mistókst að vinna til verðlauna á þessu tímabili og þarf að taka afleiðingum þess.
Benítez tekur við af Carlo Ancelotti á Bernabeu.
Real Madrid vann Meistaradeildina í fyrra en Ancelotti mistókst að vinna til verðlauna á þessu tímabili og þarf að taka afleiðingum þess.
