02.06.15 - 13:21
Magnús Már Einarsson
Ögmundur Kristinsson í Hammarby (Staðfest)

Ögmundur Kristinsson.

Mynd: Hammarby

Ögmundur Kristinsson.

Mynd: Hammarby
Markvörðurinn Ögmundur Kristinsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við sænska félagið Hammarby en hann mun fá leikheimild með félaginu þegar félagaskiptaglugginn opnar 15. júlí næstkomandi.
Ögmundur gerði eins árs samning við danska félagið Randers í fyrrasumar eftir að hafa leikið með Fram allan sinn feril.
Hinn 26 ára gamli Ögmundur hefur nú ákveðið að fara yfir til Svíþjóðar en hann á að fylla skarð Johannes Hopf sem fór frá Hammarby til Genclerbirligi í Tyrklandi á dögunum.

Ögmundur á fjóra leiki að baki með íslenska landsliðinu en hann hefur verið fastamaður í landsliðshópnum í síðustu leikjum.
Hammarby er í ellefta sæti í sænsku úrvalsdeildinni en á meðal leikmanna liðsins er landsliðsmaðurinn Birkir Már Sævarsson.