02.06.15 - 16:49
Magnús Már Einarsson
Sepp Blatter segir af sér (Staðfest)
Verður áfram í starfi þar til eftirmaður verður kosinn

Sepp Blatter.

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Sepp Blatter.

Mynd: Getty Images
Sepp Blatter hefur sagt af sér sem forseti FIFA en hann tilkynnti þetta á fréttamannafundi nú rétt í þessu. Fréttamannafundurinn var boðaður með stuttum fyrirvara og þar tilkynnti Blatter að hann hefði ákveðið að segja af sér.
Blatter var endurkjörinn forseti FIFA á föstudaginn en hann hefur nú ákveðið að segja af sér eftir spillingar mál sem hafa verið mikið í til umfjöllunar að undanförnu.

„Ég mun kalla saman sérstakt þing hjá FIFA eins fljótt og mögulegt er til að kjósa um eftirmann minn,\" sagði Blatter.
Blatter mun halda áfram sem forseti FIFA þangað til að kosið verður um eftirmann hans. Næsta þing FIFA á að vera í Mexíkó á næsta ári en Blatter hefur kallað eftir því að sérstakt þing verði boðað fyrir þann tíma.
Reiknað er með að það þing verði ekki fyrr en í fyrsta lagi eftir fjóra mánuði og því mun Blatter halda áfram sem forseti FIFA út sumarið.
Ákvörðun Blatter kemur sama dag og Jerome Velcke framkvæmdastjóri FIFA blandaðist inn í rannsókn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna á sambandinu vegna 10 milljón dollara greiðslu til Jack Warner fyrrverandi varaforseta sambandsins.
Blatter hefur verið forseti FIFA frá því árið 1998 en hann var að fara að hefja sitt fimmta kjörtímabil.
Í kosningunni á föstudag kusu 133 þjóðir Blatter en nú fjórum dögum síðar hefur hann ákveðið að stíga til hliðar eftir að hafa legið undir mikilli gagnrýni undanfarna daga.
„Þó ég hafi haft traust meðlima FIFA, þá finnst mér ég ekki hafa traust alls fótboltaheimsins, stuðningsmannana, leikmanna, félaga, og fólksins sem lifir og hrærist í fótboltanum eins og við gerum hjá FIFA,\" sagði Blatter í yfirlýsingunni.
„Því hef ég ákveðið að segja af mér embættinu á aukaþingi. Ég mun halda áfram að sinna störfum mínum sem forseti FIFA fram að þeim kosningum.\"