Lyon hefur ákveðið að festa kaup á kamerúnska landsliðsmanninum Karl Toko Ekambi.
Ekambi, 27, kom til Lyon að láni frá Villarreal í janúar og stóð sig vel. Hann skoraði aðeins tvö mörk í tólf leikjum en vinnuframlag hans og gæði hrifu stuðningsmenn og þjálfarateymi félagsins.
Ekambi er sterkbyggður framherji og býr yfir mikilli reynslu úr franska boltanum. Á sínu besta tímabili gerði hann 17 mörk í 37 Ligue 1 leikjum með Angers og var í kjölfarið keyptur til Villarreal fyrir 18 milljónir evra sumarið 2018.
Hjá Villarreal skoraði hann 24 mörk í 62 leikjum en félagið losaði sig við hann eftir kaupin á Paco Alcacer í janúar.
Kaupverðið er ekki gefið upp en talið vera í kringum 10 milljónir evra.
Athugasemdir