Fotbolti.net
18.10.26 - 13:24
Brynjar Ingi Erluson

De Zerbi um Richarlison: Ekki mitt vandamál lengur

Richarlison

Richarlison

Canon

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, segir Richarlison velkomið að ræða við sig um framtíð sína hjá félaginu, en tekur jafnframt skýrt fram að málið sé ekki lengur á hans ábyrgð.
Vill sjá Richarlison snúa aftur úr kuldanum
TENGT EFNI

Vill sjá Richarlison snúa aftur úr kuldanum

Richarlison er ekki skráður í leikmannahóp Tottenham í ensku úrvalsdeildinni, en hann gaf til kynna undir lok félagaskiptagluggans að hann vildi yfirgefa félagið.

Hann átti í viðræðum við nokkur félög en ekkert varð úr því og hefur hann síðan þá æft og spilað með U21 árs liði Tottenham.

De Zerbi, stjóri Tottenham, var spurður út í framtíð Richarlison og hvort hann ætti möguleika á að komast aftur inn í aðalliðið. De Zerbi virtist lítið vilja ræða málið og benti á að ákvörðunin hefði ekki verið í hans höndum.

„Ég veit það ekki. Þetta er ekki mitt vandamál lengur. Þú verður að spyrja Vinai (framkvæmdastjóra Tottenham) eða Johan (yfirmann íþróttamála). Sem þjálfari þarf ég hins vegar að sætta mig við stöðuna, styðja við leikmenn sem eru undir pressu og taka ábyrgð, þótt þetta hafi ekki verið mín ákvörðun.“

„Ég tók enga ákvörðun í þessu máli og ef hann vill ræða við mig veit hann hvar mig er að finna. Ég er á skrifstofunni frá 8:30 á morgnana og fram á kvöld. Ég á ekki í neinum vandræðum með neinn, en ég vil ekki ræða þetta frekar. Öll mín einbeiting er á leiknum gegn Coventry og því að gera liðið betra,“
sagði De Zerbi.
De Zerbi segir dyrnar opnar ef Richarlison vill ræða málin

De Zerbi segir dyrnar opnar ef Richarlison vill ræða málin

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.