Uppfært markmið hjá FH: Verið sársaukafyllra en við héldum

FH situr í 11. sæti Bestu deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Góður sigur í Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH hefur fengið fimm stig úr síðustu þremur leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nú er markmiðið að halda sætinu í deildinni, en markmiðin voru önnur og stærri fyrir mótið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH tekur á móti Stjörnunni á Kaplakrikavelli á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH situr í 11. sæti Bestu deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Þór Viðarsson ræddi við Fótbolta.net um stöðuna og framhaldið.

Davíð Viðars: Sýndi þegar mikið var undir hjá KR hversu mikið býr í honum
„Mér líst vel á framhaldið, finnst við að mjög mörgu leyti vera að taka framförum, finnst við hafa verið með tvo unna leiki sem við misstum niður í jafntefli á móti liðum í neðri hlutunum. Sigurinn á móti Keflavík var góður, þannig síðustu þrír leikir hafa gefið okkur ýmislegt, þó svo að við hefðum viljað fleiri stig úr þeim. Núna erum við búnir að spila 12 leiki og 15 eftir, frammistaðan í síðustu sex leikjum fyrir utan útileikinn í Víkinni hefur verið jákvæð og mér finnst hafa verið bætin hjá okkur. Við horfum í það, bætt frammistaða skilar sér oft í bættri stigasöfnun."
Er markmiðið núna að halda sætinu í deildinni?
„Já, það er augljóst markmið okkar núna úr því sem komið er. Auðvitað vorum við með önnur og kannski aðeins stærri markmið en það fyrir tímabil. Maður verður að vera raunsær og núna ætlum við að halda áfram að bæta leik liðsins og verða ennþá betri í því sem við erum að reyna gera. Að sama skapi ætlum við að ná í þau stig sem við þurftum til þess að spila í Bestu deildinni árið 2027."
Áfram rými fyrir unga leikmenn
FH lagði upp með að yngja hópinn í vetur og fjölga tækifærum fyrir yngri leikmenn.
Varðandi það að halda áfram að reyna gera það sem þið hafið verið að gera. Það hafa verið sett spurningarmerki við það að sækja Oliver Stefánsson og Guðmund Andra Tryggvason, þetta eru ekki gamlir leikmenn, en þeir eru heldur ekki ungir. Var hugsunin að þið þyrftuð meiri reynslu inn í hópinn?
„Já, við vorum alveg að hugsa að einhverju leyti um reynsluna. Ég veit að það hefur verið blásið upp að við ætluðum bara að stilla upp 17-21 árs leikmönnum í liðinu, en það var aldrei planið. Við viljum að það sé rými fyrir unga leikmenn til að brjóta sér leið inn í liðið. Við erum með ákveðið viðmið um það hvað við viljum að mikið af mínútum séu nýttar fyrir leikmenn sem eru yngri en 20 ára. Við erum á mjög góðum stað varðandi það og það er ekkert að fara breytast hjá okkur."
„Oliver er 24 ára og Guðmundur Andri er 27 ára, þeir eru á besta aldri. Okkar stefna og okkar leið er ennþá þannig að við ætlum að reyna vera með ungt, spennandi og orkumikið lið. Það er ekkert að fara breytast. En inn á milli munum við líka ná í aðeins reynslumeiri leikmenn, þeir geta vonandi gefið ungu gaurunum meira sjálfstraust og traust," segir Davíð.

Góður sigur í Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH hefur fengið fimm stig úr síðustu þremur leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nú er markmiðið að halda sætinu í deildinni, en markmiðin voru önnur og stærri fyrir mótið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH tekur á móti Stjörnunni á Kaplakrikavelli á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 13 | +38 | 37 |
| 2 | KR | 13 | +14 | 28 |
| 3 | Fram | 12 | +7 | 26 |
| 4 | Breiðablik | 12 | +6 | 19 |
| 5 | Valur | 13 | -2 | 19 |
| 6 | Keflavík | 12 | -6 | 15 |
| 7 | ÍA | 12 | -7 | 15 |
| 8 | Stjarnan | 13 | -3 | 14 |
| 9 | ÍBV | 12 | -5 | 12 |
| 10 | KA | 12 | -8 | 10 |
| 11 | FH | 12 | -13 | 7 |
| 12 | Þór | 12 | -21 | 7 |








