Fotbolti.net
02.09.26 - 07:15
Brynjar Ingi Erluson

Enzo: Enda vita allir hversu vel Man City er rekið

Enzo: Enda vita allir hversu vel Man City er rekið
Canon

Mynd: Man City

Enzo Fernandez, nýr leikmaður Manchester City, er hæstánægður með að vera genginn í raðir félagsins frá Chelsea og heitir því að gera sitt allra besta til að hjálpa liðinu að vinna titla í framtíðinni.
Enzo til Man City fyrir 125 milljónir punda (Staðfest)
TENGT EFNI

Enzo til Man City fyrir 125 milljónir punda (Staðfest)

Manchester City greiddi 125 milljónir punda fyrir Enzo Fernandez sem hafði leikið með Chelsea í þrjú og hálft ár og skipað sér í hóp bestu miðjumanna ensku úrvalsdeildarinnar.

City tókst að ganga frá kaupunum á síðustu klukkustundum félagaskiptagluggans og er Argentínumaðurinn spenntur fyrir nýju ævintýri.

„Manchester City hefur verið sigursælasta lið Englands undanfarin ár. Alla leikmenn langar að vera hluti af félagi sem þessu enda vita allir hversu vel City er rekið.“

„Ég gæti ekki verið ánægðari með að vera kominn hingað og er klár í þá áskorun að hjálpa City að halda áfram að vinna titla. Þetta félag er byggt til að ná árangri.“

„Þegar maður horfir á leikmannahópinn sér maður gæði í hverri einustu stöðu. Ég vil læra af nýju liðsfélögum mínum og verða enn betri leikmaður. Ég gef alltaf allt mitt og lofa félaginu að það mun ekki breytast.“

„Ég vil einnig þakka Hugo Viana, Enzo Maresca, Khaldoon Al Mubarak og öllum hjá City sem gerðu þetta mögulegt. Ég er þakklátur fyrir traustið sem þeir hafa sýnt mér og vil endurgjalda það eins fljótt og auðið er,“
sagði Enzo.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.