Fotbolti.net
01.09.26 - 22:39
Brynjar Ingi Erluson

Enzo til Man City fyrir 125 milljónir punda (Staðfest)

Jöfnun á Englandsmeti

Enzo til Man City fyrir 125 milljónir punda (Staðfest)
Canon

Mynd: Man City

Enzo Fernandez er kominn til Manchester City frá Chelsea fyrir 125 milljónir punda.
Enzo kveður Chelsea - „Hef ekki verið á góðum stað“
TENGT EFNI

Enzo kveður Chelsea - „Hef ekki verið á góðum stað“

Man City hefur elt Enzo síðustu vikur og hefur nú loksins landað sínum manni.

Félögin náðu samkomulagi í dag um 125 milljóna punda kaupverð og verður Argentínumaðurinn þar með dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar ásamt Alexander Isak sem Liverpool keypti fyrir sömu upphæð fyrir ári.

Enzo gekkst undir læknisskoðun seint í kvöld og skrifaði í kjölfarið undir langtímasamning. Hann kvaddi Chelsea með færslu á Instagram áður en Manchester City staðfesti komu hans.

Miðjumaðurinn kom fyrst í ensku úrvalsdeildina í ársbyrjun 2023 þegar Chelsea keypti hann frá Benfica fyrir 107 milljónir punda.

Enzo lék með Chelsea í þrjú ár og bar meðal annars fyrirliðabandið hjá félaginu í fjarveru Reece James. Nú tekur við nýtt ævintýri hjá Manchester City þar sem hann endurnýjar kynni sín við Enzo Maresca sem þjálfaði hann hjá Chelsea í eitt og hálft ár.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.