02.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Þýski bikarinn: Dortmund skoraði fimm

Samuele Inacio setti tvö

Mynd: EPA

Samuele Inacio setti tvö

Mynd: EPA
HEBC Hamburg 0 - 5 Borussia Dortmund
0-1 Janek Wrede ('33, sjálfsmark)
0-2 Daniel Svensson ('36 )
0-3 Samuele Inacio ('41 )
0-4 Samuele Inacio ('45 )
0-5 Fabio Silva ('59 )
0-1 Janek Wrede ('33, sjálfsmark)
0-2 Daniel Svensson ('36 )
0-3 Samuele Inacio ('41 )
0-4 Samuele Inacio ('45 )
0-5 Fabio Silva ('59 )
Þýska stórliðið Borussia Dortmund vann öruggan 5-0 sigur gegn HEBC Hamburg í 64-liða úrslitum þýska bikarsins í gær.
Dortmund tefldi fram mörgum leikmönnum sem hafa ekki verið fastamenn í byrjunarliðinu og hinn 18 ára gamli Samuele Inacio nýtti tækifærið heldur betur. Ítalinn skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik en Daniel Svensson komst einnig á blað auk þess sem heimamenn skoruðu sjálfsmark. Staðan var því 4-0 í hálfleik.
Portúgalski framherjinn Fabio Silva, sem hefur verið orðaður við brottför frá félaginu, bætti fimmta markinu við hálftíma fyrir leikslok.
Dortmund fór því afar þægilega áfram og er komið í 32-liða úrslit þýska bikarsins.