02.09.26 - 00:12
Brynjar Ingi Erluson
Leeds fær eldfljótan vængmann frá Frankfurt (Staðfest)

Bahoya er Leedsari

Mynd: EPA

Bahoya er Leedsari

Mynd: EPA
Franski U21 árs landsliðsmaðurinn Jean-Matteo Bahoya er kominn til Leeds frá Eintracht Frankfurt. Þetta eru líklega næstsíðustu félagaskiptin í ensku úrvalsdeildinni í þessum glugga.
Bahoya er 21 árs og afar athyglisverður leikmaður. Hann er eldfljótur og sá eini í sögu þýsku Bundesligunnar sem hefur rofið 37 km/klst múrinn frá því hraðamælingar hófust. Aðeins þrír leikmenn hafa náð þeim hraða í ensku úrvalsdeildinni.
Til samanburðar var meðalhraði Usains Bolt 37,58 km/klst þegar hann setti heimsmetið í 100 metra hlaupi árið 2009.
Bahoya hafnaði því á dögunum að ganga til liðs við Hull City en tók vel í áhuga Leeds. Félagið skilaði inn félagaskiptablaði til enska fótboltasambandsins til að fá aukinn tíma til að ganga frá skiptunum og eru þau nú komin í gegn.
Frakkinn kemur á láni út tímabilið og greiðir Leeds 1,7 milljónir punda fyrir lánið. Félagið getur síðan keypt hann á 19,7 milljónir punda en 4,3 milljónir til viðbótar gætu bæst við í árangurstengdar greiðslur.
Bahoya hefur leikið 22 leiki og skorað tvö mörk fyrir yngri landslið Frakklands.

?? ???????????????????? ???????????????? ???????????? ???????????? ?????????????????
— Leeds United (@LUFC) September 1, 2026
We are delighted to announce the signing of exciting forward Jean-Mattéo Bahoya, who joins on loan from Eintracht Frankfurt with the option to become a permanent transfer pic.twitter.com/1b5vs0ggSL