Fotbolti.net
02.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Brighton kynnir nýjan leikmann í dag

Brighton kynnir nýjan leikmann í dag
Canon

Mynd: Millwall FC

Brighton mun kynna nýjan leikmann í dag, en vængmaðurinn Femi Azeez kemur til félagsins frá Millwall.
Brighton náði samkomulagi við Millwall um kaup á Femi Azeez í gær en kaupverðið er um 15 milljónir punda.

Azeez er 25 ára Nígeríumaður sem hefur vakið mikla athygli með Millwall síðan hann kom frá Reading fyrir tveimur árum. Hann var valinn í lið ársins í ensku B-deildinni á síðustu leiktíð þegar Millwall komst í umspilið.

Samkvæmt Athletic eru félagaskiptin klöppuð og klár en Azeez verður ekki kynntur til leiks fyrr en í dag.

Brighton eyddi þar með um 170 milljónum punda í leikmannakaup í sumar en seldi fyrir 195 milljónir. Félagið kom því út úr glugganum með um 25 milljóna punda hagnað.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.