02.09.26 - 19:54
Elvar Geir Magnússon
Mjög óvænt skipti Alberts - „Klárt hliðarskref á hans ferli“

Albert í myndatöku hjá Lazio.

Mynd: Lazio

Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska boltann.

Mynd: Ítalski boltinn

Albert í leik með íslenska landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Albert var kynntur hjá Lazio í gær.

Mynd: Lazio

Í leik með Fiorentina.

Mynd: EPA

Gennaro Gattuso er þjálfari Lazio.

Mynd: EPA

Albert í myndatöku hjá Lazio.

Mynd: Lazio
Hlutirnir eru oft fljótir að gerast í boltanum og eftir að hafa verið orðaður við Lazio um síðustu helgi er Albert Guðmundsson orðinn leikmaður liðsins.
„Þetta kemur mjög á óvart enda hafði hann ekkert verið orðaður við Lazio í allt sumar," segir Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska boltann.
„En hjá Fiorentina er allsherjar endurnýjun í gangi eftir afhroðið á síðasta tímabili. Með sölunni á Moise Kean til Como missti Fiorentina mikinn hraða í framlínuna og því töldu stjórnendur að það þyrfti að fá inn hraðari kantmenn, frekar en tæknilegan eins og Albert er."

TENGT EFNI
Albert Guðmunds til Lazio (Staðfest)
Sögulega séð stærra félag
„Þetta er klárt hliðarskref á hans ferli. Undanfarin ár hefur Lazio oftast endað ofar í töflunni en Fiorentina og leikið í stærri Evrópukeppnum. Fiorentina projectið sem Albert fór til á sínum tíma leit vel út á pappír, mikið var lagt í liðið og ætlunin að taka skref fram á við en á síðasta tímabili hrundi allt. Í flestra augum er Fiorentina meira “sexí” lið með goðsagnakennda búninga og margar goðsagnir hafa klæðst treyju félagsins en Lazio er sögulega séð stærri klúbbur, frá stærri borg sem spilar heimaleiki á stærri velli," segir Björn Már.
Björn Már skrifaði í upphitunargrein fyrir tímabilið að andrúmsloftið væri þungt hjá Lazio og fjármál félagsins hafa verið óreiðukennd.
„Lazio er í talsverðum fjárhagsvandræðum og hefur því verið í vandræðum með að styrkja sig í sumar og margir, þar með talinn ég, hafa spáð þeim erfiðu gengi í vetur. En þeir hafa síðan byrjað tímabilið af krafti, öfugt við Fiorentina, og gæti vel farið svo að Lazio endi fyrir ofan Fiorentina undir lok tímabils."
Engin rífandi stemning
„Það verður athyglisvert að fylgjast með Alberti á þessu tímabili, sér í lagi vegna þeirra vandræða sem ríkja utan vallar hjá Lazio. Stuðningsmenn félagsins vilja ólmir losna við forseta félagsins, Claudio Lotito, og aðeins um 2.500 ársmiðar hafa verið seldir, samanborið við 30.000 í fyrra," segir Björn Már.
„Það er því engin rífandi stemning sem bíður hans á Stadio Olimpico en á útivelli er staðan önnur og þar mættu stuðningsmenn og létu vel í sér heyra á fyrsta leik tímabilsins gegn Bologna á Stadio Renato dall’Ara."
Hlutverk Alberts
„Albert er klárlega með gæðin til að starta hjá Lazio, vandræðin líkt og hjá Fiorentina snúa heldur að leikkerfi. Bæði undir Sarri í fyrra og Gattuso núna spilar Lazio klassískan 4-3-3 og með fyrirliðann Mattia Zaccagni geirnegldan á vinstri kantinum, þrátt fyrir slakt tímabil í fyrra."
„Frammi er liðið búið að sækja Andrea Pinamonti sem er stór, klassísk nía. Spurningin er því hvort Albert muni spila sem sóknarsinnaður miðjumaður (eða sem átta) í 4-3-3 eða sem fölsk nía í stað Pinamontis. Eða þá þriðji möguleikinn, að Gattuso breyti um leikkerfi, til dæmis í 4-4-2, eitthvað sem reyndar gæti hentað leikmannahópnum ágætlega."
Eins og hann elski vonlaus verkefni
Gennaro Gattuso tók við Lazio í sumar en honum mistókst að koma ítalska landsliðinu á HM. Gattuso var frábær leikmaður en hefur ekki gengið eins vel í þjálfarahlutverkinu.
„Þjálfaraferill Gennaro Gattusos er ekkert að hrópa húrra fyrir en þegar grannt er skoðað hefur hann alltaf tekið við klúbbum í miklum vandræðum. Það er eins og hann elski vonlaus verkefni. Hann tók við AC Milan í niðurníðslu og var einu stigi frá því að koma þeim í Meistaradeildina. Hann tók við Napoli í vandræðum, vann bikarinn og var aftur einu stigi frá Meistaradeildinni. Hann tók við Ítalíu í vandræðum og var einni vítaspyrnukeppni frá því að koma liðinu á HM," segir Björn Már.
„Leikmenn sem hafa spilað fyrir hann tala vel um hann og hann vill spila sóknarsinnaðan fótbolta. Þá virðist sem hann hafa notað vandræði félagsins utan vallar til að þjappa leikmannahópnum saman og myndað “við á móti heiminum” hugarfar í leikmannahópnum. Þessi félagsskipti Alberts hafa því frekar lítið downside en mikið upside."
Albert, sem er 29 ára, er kominn til Lazio á láni frá Fiorentina en Lazio getur gert skiptin varanleg á meðan lánsdvölinni stendur.