Fotbolti.net
02.11.26 - 21:57
Ívan Guðjón Baldursson

England: Newcastle tapaði aftur gegn Everton

England: Newcastle tapaði aftur gegn Everton
Canon

Mynd: EPA

Newcastle 0 - 1 Everton
0-1 Thierno Barry ('49 )
Enski deildabikarinn: Everton með öruggan sigur á Newcastle
TENGT EFNI

Enski deildabikarinn: Everton með öruggan sigur á Newcastle

Newcastle United og Everton áttust við í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni, en þetta var í annað sinn sem liðin mættust á fjórum dögum. Everton vann 3-1 á heimavelli er liðin mættust í deildabikarnum fyrir helgi og í dag átti Newcastle heimaleik.

Þjálfararnir gerðu tvær breytingar á byrjunarliðunum sínum á milli leikja og aftur hafði Everton betur í kvöld. Lærlingar David Moyes voru sterkari aðilinn og fengu besta færið í fyrri hálfleik en staðan var markalaus þegar lið gengu til búningsklefa.

Thierno Barry kom Everton yfir með marki af stuttu færi á 49. mínútu eftir að Lukas Hornicek mistókst að stöðva marktilraun frá Tyrique George. Boltinn rann undir Hornicek, sem átti þar fyrir utan góðan leik, og var Barry réttur maður á réttum stað.

Anthony Elanga komst hársbreidd frá því að jafna fyrir heimamenn en boltinn rataði ekki yfir marklínuna, heldur snerist hann úr markinu eftir mikinn atgang. Yoane Wissa fékk svo gott færi á lokamínútunum en Jordan Pickford varði með fótunum eftir að hafa skutlað sér í ranga átt.

Í uppbótartímanum lét Jacob Ramsey, sem kom inn af bekknum á 75. mínútu, reka sig af velli með að fá tvö gul spjöld með stuttu millibili.

Lokatölur urðu því 0-1 og stekkur Everton upp í 7. sæti úrvalsdeildarinnar, þar sem liðið er með 13 stig eftir 9 umferðir. Newcastle situr eftir í neðri hlutanum með 11 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.