02.11.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Flick um Balde: Er að standa sig vel á æfingum

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fjölmiðlar á Englandi og Spáni fjalla um áhuga Manchester United á bakverðinum Alejandro Balde, sem á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við Spánarmeistara Barcelona.

TENGT EFNI
Möguleiki að Balde fari til Man Utd
Balde er ekki í mikilvægu hlutverki undir stjórn Hansi Flick og fær lítinn spiltíma þrátt fyrir gríðarleg meiðslavandræði í varnarlínu Börsunga.
Barca þarf að styrkja varnarlínuna í janúar og er sagt vera opið fyrir að selja Balde til að skapa pláss fyrir nýja varnarmenn.
„Það er ennþá tími áður en vetrarglugginn opinn og við erum líklegir til að hreyfa okkur. Við þurfum að bæta varnarmönnum við hópinn," segir Flick.
Barca hefur verið orðað við argentínska landsliðsmanninn Lisandro Martínez hjá Man Utd og er ekki útilokað að félögin skipti á varnarmönnunum. Martínez rennur út á samningi eftir tímabilið, en Rauðu djöflarnir eiga möguleika á að framlengja um eitt ár.
Balde er 23 ára gamall og hefur aðeins komið við sögu í fjórum leikjum á tímabilinu - þar af þremur síðustu leikjum í röð.
„Það er eðlilegt að leikmaður missi sjálfstraust þegar hann er ekki að spila en Balde er að standa sig vel á hverri einustu æfingu. Ég ber mikla virðingu fyrir honum og reyni að hjálpa honum að finna sjálfstraustið á ný. Hann er að reyna að komast aftur í sitt besta stand og ég er ánægður með framfarirnar sem hann hefur sýnt."
Balde gaf þrjár stoðsendingar í 42 leikjum með Barca á síðustu leiktíð.