Fotbolti.net
02.11.26 - 14:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Framkvæmdastjóri Þórs: Ákvörðun KA kom á óvart

Framkvæmdastjóri Þórs: Ákvörðun KA kom á óvart
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Kvennaboltinn
KA gaf út tilkynningu í dag þess efnis að félagið ætlaði sér ekki að endurnýja samstarfssamning við Þór en félögin hafa saman komið að sameinuðu liði Þórs/KA í kvennaboltanum síðustu áratugi.

Þór/KA var myndað 1999 og varð Akureyrarliðið Íslandsmeistari 2012 og 2017. Liðið endaði í 8. sæti Bestu deildarinnar í ár eftir að hafa bjargað sæti sínu í deildinni með sigri í lokaumferðinni.

Þór verður því með lið í Bestu deildinni en KA byrjar í 2. deild.

Í tilkynningu KA kemur fram að framtíðarsýn félagsins sé sú að kvennafótbolti verði hornsteinn í starfi félagsins og að stúlkur í KA fái tækifæri til að leika undir merkjum félagsins alla leið upp í meistaraflokk.
KA slítur samstarfinu við Þór
TENGT EFNI

KA slítur samstarfinu við Þór

Fótbolti.net ræddi við framkvæmdastjóra Þórs í dag og segir hann að ákvörðun KA komi á óvart. Kallað hafa verið eftir fundi í hádeginu, málin hafi verið rædd en fyrir fundinn hafi ekki verið búist við þessari niðurstöðu.

„Þetta var ekki það sem við bjuggumst við, kom okkar á óvart, en við ætlum á fullt gas og koma gríðarlega sterk inn í kvennaboltann, bæði í meistaraflokki, sem og í 2. og 3. flokki sem Þór," segir Reimar Helgason.

Hann segir að mörgu sé að hyggja. En heldur hann að það séu leikmenn í Þór/KA núna sem fari í KA?

„Við erum með mjög mikið af metnaðarfullum leikmönnum og ég myndi halda að allir leikmenn sem ætli sér einhverja hluti vilji vera í efstu deild."

„Við höfum ekki náð að funda með leikmönnum en það verður gert eins fljótt og hægt er."

„Við ætlum að vera með samkeppnishæft lið í Bestu deildinni á næsta tímabili og koma mjög sterk inn í 2. og 3. flokk. Við erum uppeldisfélag og erum stolt af því, við teljum okkur gera það vel eins og sást í sumar. Það á við um bæði kyn,"
segir Reimar.

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, Alli Jói, verður að öllu óbreyttu þjálfari á næsta tímabili en hann stýrði Þór/KA á liðnu tímabili.
Framkvæmdastjóri Þórs: Ákvörðun KA kom á óvart
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framkvæmdastjóri Þórs: Ákvörðun KA kom á óvart
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alli Jói verður að öllu óbreyttu þjálfari Þórs á komandi tímabili.

Alli Jói verður að öllu óbreyttu þjálfari Þórs á komandi tímabili.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.