Fotbolti.net
02.11.26 - 14:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

KA slítur samstarfinu við Þór

Þór/KA heyrir sögunni til

KA slítur samstarfinu við Þór
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Kvennaboltinn
Eins og greint var frá fyrr í dag var samstarfssamningur milli Þórs og KA um kvennaliðið Þór/KA runninn út.

KA gaf svo út tilkynningu rétt í þessu þess efnis að félagið hefði tekið þá ákvörðun að endurnýja ekki samninginn.
„Að baki ákvörðuninni liggur sú framtíðarsýn KA að kvennaknattspyrna verði hornsteinn í starfi félagsins og að stúlkur sem hefja æfingar hjá KA fái tækifæri til að leika undir merkjum félagsins alla leið upp í meistaraflokk."

„Frá og með næsta tímabili mun KA tefla fram eigin liðum í 3. flokki, 2. flokki og meistaraflokki kvenna. Félagið lítur björtum augum til þessa nýja kafla og hlakkar til að byggja upp öflugt, faglegt og skemmtilegt kvennastarf sem KA-fólk getur verið stolt af."

„KA þakkar Þór fyrir gott og gifturíkt samstarf í gegnum tíðina og óskar félaginu alls hins besta,"
segir í tilkynningunni og er Ásgeir Örn Blöndal skrifaður fyrir henni fyrri hönd kvennaráðs fótboltadeildar KA.

Þór/KA endaði í 8. sæti Bestu deildarinnar á liðnu tímabili. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net verður Þór með lið í efstu deild á næsta tímabili en KA byrjar í 2 .deild.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.