02.11.26 - 17:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rúnar: Jakob bað um að fá að ræða við önnur félög

Jakob Byström skoraði þrjú mörk á liðnu tímabili eftir að hafa skorað sjö mörk tímabilið á undan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Simon Tibbling byrjaði tímabilið í lykilhlutverki en svo minnkaði það.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á endanum er það þannig að besti leikmaðurinn og besta liðið byrjar inn á

Í útvarpsþættinum Fótbolti.net var sagt frá því að þeir Jakob Byström og Simon Tibbling gætu farið frá Fram í vetur. Þeir voru í takmörkuðu hlutverki á nýliðnu tímabili.
Fótbolti.net ræddi við Rúnar Kristinsson, þjálfara Fram, um stöðu Svíanna.

TENGT EFNI
Svíarnir gætu farið frá Fram
„Ég sé þá báða í Fram, þeir eru báðir samningsbundnir Fram," segir Rúnar.
„Í tilfelli Jakobs (2005) þá er hann búinn að biðja um að fá að ræða við önnur félög af því hann var ósáttur við að fá ekki fleiri leiki. Við urðum við hans ósk, hann má ræða við önnur félög og þau geta svo komið með tilboð í hann, hvort sem það eru íslensk eða erlend. En það er samt ekki þar með sagt að ég vilji losna við hann, ég hefði viljað hafa hann. Mér finnst ekkert sérstaklega gaman að vera með leikmenn í mínum hóp sem vilja ekki vera hjá mér, þá er alveg eins gott að losa sig við þá. Þannig er það og hefur alltaf verið hjá mér. En ég mun alveg gefa honum nýjan séns ef hann finnur sér ekkert annað."
„Varðandi Simon (1994) þá er hann orðinn þetta fullorðinn og maður sér fyrir sér að hann vilji spila meira. Hann á von á öðru barni á nýju ári og við höfum rætt um framtíðina. Ég sé hann alveg fyrir mér sem leikmann Fram á næsta ári, hann er frábær og hefur verið frábær fyrir okkur."
„En menn þurfa að vera tilbúnir að hlutverkið sé ekkert alltaf eins. Þú ert ekkert fastur í liði þegar það eru 30 leikir plús á tímabili. Það þarf breidd, það verður að vera hægt að rúlla á liðinu stundum, gefið mönnum sénsa og hvílt einhverja. Á endanum er það þannig að besti leikmaðurinn og besta liðið byrjar inn á. Þetta snýst um að standa sig á æfingum og í leikjum þegar þú færð tækifæri til að sýna þig," segir Rúnar.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net voru njósnarar frá Djurgården og Gautaborg að fylgjast með Byström síðasta vetur og MSC Zilina í Slóvakíu reyndi að kaupa hann í febrúar. Í sumarglugganum var svo talsverður áhugi á honum innanlands en hann fór hvergi.