Fotbolti.net
02.11.26 - 09:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kristján Flóki yfirgefur FH (Staðfest)

Kristján Flóki yfirgefur FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristján Flóki Finnbogason er að yfirgefa FH en samningur hans við félagið er að renna út og hann mun ekki fá nýjan samning í Kaplakrika.

FH þakkar honum fyrir samstarfið í gegnum árin og óskar honum alls hins besta í framtíðinni.

Flóki er framherji sem fæddur er árið 1995. Hann er uppalinn hjá FH og sneri aftur í Kaplakrika sumarið 2024 þegar FH og KR skiptu á leikmönnum.
Tímabilið 2025 skoraði hann þrjú mörk í 14 deildarleikjum en á liðnu tímabili tókst Flóka ekki að skora í 21 leik.

Hann varð Íslandsmeistari með KR 2019, hjálpaði liðinu eftir að hafa komið í sumarglugganum. Áður hafði hann unnið Íslandsmeistaratitilinn með FH 2012, 2015 og 2016.

Flóki á að baki sex A-landsleiki og skoraði í þeim eitt mark. Erlendis hefur hann verið á mála hjá FCK, Start og Brommapojkarna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.