Spænski markvörðurinn David de Gea er klár í slaginn fyrir leik Manchester United í mikilvægum Meistaradeildarleik gegn PSG í kvöld. De Gea fór af velli í hálfleik gegn Southampton vegna meiðsla í hné.
Dean Henderson kom inn í markið um helgina en Mirror spáir því að De Gea verði í rammanum í kvöld.
Dean Henderson kom inn í markið um helgina en Mirror spáir því að De Gea verði í rammanum í kvöld.
Sunnudagshetjan Edinson Cavani mun væntanlega byrja gegn sínu fyrrum félagi
Bruno Fernandes, Donny van de Beek, Nemanja Matic og Fred verða væntanlega á miðjunni.
Manchester United er á toppi H-riðils með 9 stig en PSG og RB Leipzig eru með 6 stig og mikil spenna. Istanbúl Basaksehir er með 3 stig.
Líklegt byrjunarlið Man Utd: De Gea; Wan-Bissaka, Lindelof, Maguire, Telles; Fred, Matic, Van de Beek; Fernandes, Cavani, Rashford.
Líklegt byrjunarlið PSG: Navas; Florenzi, Diallo, Kimpembe, Bakker; Verratti, Marquinhos, Herrera; Di Maria, Mbappe, Neymar.
Athugasemdir