Fotbolti.net
03.02.26 - 21:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Championship: Blackburn upp úr fallsæti

Championship: Blackburn upp úr fallsæti
Canon

Mynd: Blackburn Rovers

Andri Lucas Guðjohnsen, leikmaður Blackburn, er að koma til baka eftir langa fjarveru. Hann byrjaði á bekknum í sigri á botnliði Sheffield Wednesday í kvöld.

Félagið komst að samkomulagi við Valerien Ismael í gær að hann myndi láta af störfum. Damien Johnson sem hefur lengi verið í þjálfarateymi liðsins stýrði liðinu í kvöld.

Eiran Cashin kom Blackburn yfir snemma leiks. Andri kom inn á eftir klukkutíma leik en honum tókst ekki að bæta við marki eins og aðrir og naumur sigur liðsins var staðreynd.
Þessi úrslit þýða að Blackburn komst upp úr fallsæti og er í 21. sæti með 32 stig, jafn mörg stig og West Brom sem er í fallsæti.

Sheffield United vann öruggan sigur á Oxford United og Hull og Watford gerðu jafntefli. Watford er í baráttunni að komast í umspilið en Hull er í 3. sætinu og missti af mikilvægum stigum í baráttunni um að komast beint upp.

Sheffield Utd 3 - 1 Oxford United
0-1 Myles Peart-Harris ('13 )
1-1 Sydie Peck ('41 )
2-1 Andre Brooks ('66 )
3-1 Chiedozie Ogbene ('83 )

Hull City 0 - 0 Watford

Blackburn 1 - 0 Sheffield Wed
1-0 Eiran Cashin ('12 )

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough12+1025
2Swansea12+323
3West Ham12+1722
4Wolves12+421
5West Brom12+321
6Southampton12+1220
7Birmingham12+820
8QPR12+820
9Stoke City12+220
10Blackburn12+318
11Portsmouth12+118
12Sheffield Utd12+116
13Millwall12-115
14Bristol City12-315
15Lincoln City12-715
16Cardiff City12+214
17Wrexham12-314
18Bolton12-714
19Charlton Athletic12-714
20Norwich12-212
21Watford12-1011
22Burnley12-88
23Derby County12-117
24Preston NE12-155
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.