Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   þri 03. febrúar 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Arsenal og Chelsea berjast um sæti í úrslitaleikinn
Arsenal er í góðri stöðu
Arsenal er í góðri stöðu
Mynd: EPA
Arsenal og Chelsea mætast í seinni undanúrslitalek enska deildabikarsins klukkan 20:00 á Emirates-leikvanginum í kvöld.

Lærisveinar Mikel Arteta unnu 3-2 sigur á Chelsea í fyrri leiknum sem fór fram á Stamford Bridge fyrir þremur vikum. Viktor Gyökeres skoraði og lagði upp í leiknum, en Alejandro Garnacho gerði bæði mörk Chelsea.

Sigurvegarinn mun mæta Manchester City eða Newcastle United í úrslitaleiknum sem fer fram á Wembley í næsta mánuði.

Leikur dagsins:
20:00 Arsenal - Chelsea
Athugasemdir
banner
banner