Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
   þri 03. febrúar 2026 14:12
Elvar Geir Magnússon
Fenerbahce segir það Al-Ittihad að kenna að félagið fékk ekki Kante
N'Golo Kante hefur leikið 65 landsleiki fyrir Frakkland.
N'Golo Kante hefur leikið 65 landsleiki fyrir Frakkland.
Mynd: EPA
Tyrkneska félaginu Fenerbahce tókst ekki að landa franska miðjumanninum N'Golo Kante frá Al-Ittihad og kennir Sádi-arabíska félaginu um það.

Fenerbahce segir að læknisskoðun leikmannsins hafi verið kláruð og öll pappírsmál af þeirra hálfu. Hinsvegar hafi Al-Ittihad ekki skilað öllu frá sér á tilsettum tíma.

Fenerbahce reyndi að fá framlengingu á fresti frá FIFA til að klára kaupin á Kante en fékk ekki.

Sem hluti af samkomulaginu átti marokkóski sóknarmaðurinn Youssef En-Nesyri að fara til Al-Ittihad. Talað var um að hann ætti að fylla skarð Karim Benzema sem fór til keppinautana í Al-Hilal.

Kante er 34 ára en hann vann Meistaradeildina, ensku úrvalsdeildina, Evrópudeildina og FA-bikarinn sem leikmaður Chelsea. Þá hjálpaði hann Leicester að vinna ensku úrvalsdeildina á sögulegan hátt 2016.
Athugasemdir
banner
banner