Víkingur lagði á dögunum fram tilboð í Helenu Ósk Hálfdánardóttur og Valur hefur, samkvæmt heimildum Fótbolta.net, samþykkt tilboðið.
Það bendir því flest til þess að þessi sóknarsinnaði leikmaður verði tilkynnt sem nýr leikmaður Víkings á næstunni.
Það bendir því flest til þess að þessi sóknarsinnaði leikmaður verði tilkynnt sem nýr leikmaður Víkings á næstunni.
Helena Ósk sem er fædd árið 2001 er uppalin hjá FH og hefur einnig verið hjá Fylki, Val og Breiðabliki á sínum ferli. Fyrir síðasta tímabil skrifaði Helena undir þriggja ára samning við Val.
Á síðasta tímabili skoraði hún eitt mark í 21 leik í Bestu deildinni.
Víkingur endaði í 5. sæti Bestu deildarinnar í fyrra eftir að hafa farið illa af stað og er stefnan sett á titilbaráttu á komandi tímabili.
Athugasemdir



