Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
   þri 03. febrúar 2026 11:30
Elvar Geir Magnússon
Tíu stærstu nöfnin sem eru án félags og hægt að semja við
Dele Alli er á listanum.
Dele Alli er á listanum.
Mynd: EPA
Alex Oxlade-Chamberlain.
Alex Oxlade-Chamberlain.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
James Rodriguez.
James Rodriguez.
Mynd: EPA
Janúarglugginn var með rólegasta móti en honum var lokað í gærkvöldi. Það eru þó enn leikmenn sem félög geta samið við þar sem þeir eru án félags. Mirror tók saman tíu leikmenn sem eru falir á frjálsri sölu.

Á fimmtudaginn lokar fyrir skráningu í hópa hjá ensku úrvalsdeildarfélögunum.

Raheem Sterling
Komst að samkomulagi við riftun á samningi við Chelsea á dögunum. Þessi fyrrum leikmaður Liverpool, Manchester City og Arsenal er atvinnulaus. Er 31 árs og ekki með eins háar launakröfur og áður.

Kurt Zouma
Þessi fyrrum varnarmaður West Ham og Chelsea samdi við rúmenska félagið CFR Cluj í september en samningi hans var rift í janúar og hann er án félags. Er 31 árs.

Jesse Lingard
Lék í tæplega tvö ár í Suður-Kóreu en yfirgaf FC Seoul í desember. Það hafa verið ýmsar sögusagnir um hvert næsta félag þessa 33 ára fyrrum leikmanns Manchester United, West Ham og Nottingham Forest gæti verið.

Ryan Kent
Þessi 29 ára vængmaður var á sínum tíma í akademíu Liverpool þar sem miklar vonir voru bundnar við hann. Skapaði sér nafn hjá Rangers og lék síðast fyrir Seattle Sounders í bandarísku MLS-deildinni.

Alex Oxlade-Chamberlain
Uxinn hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Besiktas í ágúst 2025. Hann er 32 ára; hefur fengið að halda sér í formi með því að æfa með Arsenal og Skotlandsmeistarar Celtic hafa sýnt honum áhuga.

Aaron Ramsey
Þessi fyrrum leikmaður Arsenal lék síðast fyrir Pumas í Mexíkó en yfirgaf félagið af persónulegum ástæðum. 35 ára og gæti vonast til að fara með Wales á HM í sumar.

James Rodriguez
Lék með Real Madrid og Bayern München. Síðan hann yfirgaf Everton hefur hann spilað í Katar, Grikklandi, Brasilíu, Spáni og Mexíkó. Hann er 34 ára og kominn yfir sitt besta en HM nálgast og Kólumbíumaðurinn getur hugsað til þess.

Serge Aurier
33 ára hægri bakvörður. Lék með Tottenham í fjögur ár. Var félagslaus í heilt ár eftir að hann yfirgaf Galatasaray 2024 en lék síðast með Persepolis í Íran. Hann yfirgaf félagið í janúar.

Dele Alli
Hinn umtalaði Dele Alli er án félags síðan hann yfirgaf ítalska félagið Como í september. 29 ára og hefur verið að æfa einn síðan hann kvaddi Ítalíu. Talað hefur verið um áhuga frá Spáni og ensku Championship-deildinni.

Divock Origi
Költ-hetja Liverpool stuðningsmanna er atvinnulaus. Vann Meistaradeildina með Liverpool en síðan hann yfirgaf félagið hefur hann spilað fyrir AC Milan og Nottingham Forest. Sóknarmaðurinn er 30 ára gamall en samningi hans við ítalska félagið var rift í desember.
Athugasemdir
banner
banner