Jesse Lingard, fyrrum leikmaður Man Utd, er án félags eftir að hafa rift samningi sínum við suður kóreska félagið FC Seoul í desember.
Hann hefur ekki fundið sér nýtt lið en TalkSPORT greinir frá því að félög á Englandi hafi fengið tækifæri til að næla í hann.
Hann hefur ekki fundið sér nýtt lið en TalkSPORT greinir frá því að félög á Englandi hafi fengið tækifæri til að næla í hann.
Þar á meðal var West Ham sem Lingard spilaði með árið 2021 á láni frá Man Utd. West Ham hafði hins vegar ekki áhuga á honum. Nuno Espirito Santo ákvað að taka Adama Traore frá Fulham frekar.
Lingard er 33 ára gamall sóknarmaður en hann skoraði 9 mörk í 16 leikjum fyrir West Ham á sínum tíma.
Athugasemdir


