Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir ræddi við Snæbjörtu Pálsdóttur á sunnudag um leikinn gegn Spáni í undankeppni HM sem fram fer í kvöld. Leikið er ytra og hefst leikurinn 18:00 að íslenskum tíma.
Í viðtalinu, sem sjá má í heild sinni í spilaranum neðst, ræðir Sveindís um Bandaríkin en þar spilar hún með Angel City í Los Angeles.
Í viðtalinu, sem sjá má í heild sinni í spilaranum neðst, ræðir Sveindís um Bandaríkin en þar spilar hún með Angel City í Los Angeles.
„Cessa segir að ég sé ógeðslega góð í þessu (að tækla löng ferðalög). Ég hef sofið mjög vel, alltaf náð 8-9 tímum á næturnar og líður mjög vel. Þetta hefur gengið mjög vel og ég er ánægð með það," segir Sveindís sem þurfti að ferðast frá Bandaríkjunum til að koma til móts við landsliðið. Cessa er landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir.
Sveindís samdi við Angel City í fyrra eftir að hafa spilað í nokkur ár í Þýskalandi. Hvernig er bandaríska deildin?
„Mér finnst geggjað að spila þar, spilum gegn frábærum liðum og liðið mitt er líka mjög gott. Þetta er mjög jöfn deild sem er mjög skemmtilegt, ekki eitthvað eitt lið sem er yfirburðar. Allir bestu leikmennirnir dreifast á liðin. Mér finnst það mjög gaman og ógeðslega skemmtilegt að spila svona jafna leiki. Ég er að fíla mig mjög vel."
„Ég var í Wolfsburg og það var annað af yfirburðarliðunum ásamt Bayern. Þar voru fleiri leikir þar sem mitt lið var mikið með boltann og skoruðum helling af mörkum. Núna er þetta jafnara og allir leikir erfiðir. Mér finnst það henta mér betur að geta líka varist og tekið það með mér í landsliðið. Þetta er ekki bara sóknarbolti, heldur líka áhersla á að verjast vel og ógeðslega hraðir leikmenn líka. Mér finnst þetta mjög svipað í styrkleika og þýska deildin, en fleiri „alvöru" leikir."
Tímabilið í Bandaríkjunum hefst eftir landsleikjahléið.
Eru fjölskyldumeðlimir duglegir að koma í heimsókn til þín?
„Ég hef fengið eina heimsókn hingað til, mamma og systir mín eru nýbúnar að koma sem var mjög gaman - stelpuferð. Ég er alveg viss um að þær fari að koma bráðum aftur og pabbi komi þá vonandi með þeim í það skiptið. Þetta er ógeðslega langt ferðalag og ekkert beint flug frá Íslandi sem er smá snúið. Það eru allir búnir að lofa mér að koma, vilja allir koma til LA, en við sjáum til hvort það verði eitthvað úr því," sagði Sveindís að lokum.
Athugasemdir



